Eiður Smári: Messi er einstakur og verður sárt saknað Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. mars 2008 14:10 Lionel Messi gengur tárvotur af velli í gær. Nordic Photos / AFP
Eiður Smári Guðjohnsen segir að Lionel Messi skilji eftir sig stórt skarð í liði Barcelona sem afar erfitt verði að fylla. „Leo er einstakur leikmaður, einn sá besti í heimi. Hann skilur eftir sig stórt skarð," sagði Eiður við spænska fjölmiðla. „Það er undir öðrum leikmönnum komið að nýta tækifærið sem nú býðst með fjarveru hans. En ég er ekki hrifinn af því að sjá menn lenda í meiðslum og sérstaklega ekki Leo. Hann er þannig leikmaður sem getur unnið leiki upp á sitt einsdæmi." Hann sagði að loknum leik Barcelona og Celtic í Meistaradeildinni í gær að það væru blendnar tilfinniingar hjá leikmönnum liðsins. „Við óskum þess allir að Messi jafni sig fljótt og vel og allir leikmenn styðja við bak hans. En á hinn bóginn náðum við að komast áfram í næstu umferð Meistaradeildarinnar." Eiður sagði að það skipti ekki máli hvaða liði Börsungar myndu mæta í fjórðungsúrslitum keppninnar. „Öll liðin sem komast svo langt í keppninni eru mjög sterk." Miklar vangaveltur hafa verið um framtíð Frank Rijkaard hjá Barcelona og hefur Jose Mourinho, fyrrum stjóri Eiðs Smára hjá Chelsea, verið orðaður við stöðuna hans. Sjálfur vildi Eiður ekki tjá sig um hvað gæti orðið í framtíðinni heldur ætti að sýna Rijkaard það traust og þá virðingu sem hann ætti skilið nú.
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira