Lífið

Botnlanginn veittur í kvöld

Júlía Margrét Einardóttir skrifar
Hörður Harðarson og Stefán Gunnarsson standa að Botnlanganum þar sem sístu auglýsingar ársins eru verðlaunaðar.
Hörður Harðarson og Stefán Gunnarsson standa að Botnlanganum þar sem sístu auglýsingar ársins eru verðlaunaðar. Fréttablaðið/GVA
Kattaauglýsing Símans þar sem köttur sést gleypa mann er meðal þeirra auglýsinga sem tilnefndar eru sem sístu auglýsingar ársins 2008 á nýrri og vafasamri verðlaunahátíð í kvöld: Botnlanganum.

„Ætlunin er ekki að vera með neitt skítkast heldur benda á það sem betur hefði mátt fara," segir Stefán Gunnarsson markaðsmaður en hann ásamt Herði Harðarsyni markaðsmanni og fleirum standa að baki Botnlanganum, verðlaunahátíð þar sem sístu auglýsingar ársins fá viðurkenningu.

Það er hefð fyrir því að daginn fyrir Óskarsverðlaunin séu háðungsverðlaunin Razzies veitt þeim kvikmyndum sem lélegastar þykja í Hollywood. Botnlangann 2008 ber því upp daginn áður en Lúðurinn, íslensku auglýsingaverðlaunin, eru veitt á Hilton Reykjavík Nordica. „Jú, það má kannski segja að þetta sé hálfgerð gullkind, nema með faglegri áherslu," segir Stefán.

„Þannig er 22 manna fagleg dómnefnd, sem í situr starfsfólk auglýsingastofa, framleiðendur, almannatengslar og fleiri, sem velur sístu sjónvarpsauglýsinguna, sístu herferðina og svo er flokkur sem kallast vörumerkjatæring ársins en þar verður það vörumerki valið sem hrapað hefur hvað mest í verðgildi á árinu,“ útskýrir Stefán.

Verðlaunin verða send verðlaunahöfum í pósti en tilkynnt verður um úrslit á visir.is og á Stöð 2. Þeir félagar Stefán og Hörður segja að fólki finnist alltaf gaman að tala um auglýsingar.

„Fólk hefur alltaf gaman af því að spá og spekúlera í auglýsingum enda er þetta vinsælt sjónvarpsefni hjá ungum sem öldnum. Við vonumst til þess að þessi viðburður geti orðið auglýsingamönnum til gagns og leiðbeiningar frekar en að einhverjir taki þetta nærri sér,“ segir Stefán að lokum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.