Hefur eitthvað breyst á 8 árum? - Logi mætir aftur í Síkið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2009 15:45 Logi Gunnarsson í leik með Njarðvík. Mynd/Anton
Logi Gunnarsson og félagar í Njarðvík heimsækja í kvöld Tindastól í Iceland Express deild karla en þetta er frestaður leikur frá því úr 16. umferð. Leikurinn fer fram í Síkinu á Sauðárkróki en þetta verður fyrsti leikur Loga í þessu húsi síðan að hann varð Íslandsmeistari með Njarðvík vorið 2001. Logi lék erlendis frá 2001 til 2008 en hefur leikið með Njarðvík á þessu tímabili. Logi kunni einstaklega vel við sig í Síkinu í lokaúrslitunum fyrir átta árum því hann braut þrjátíu stiga múrinn í báðum útileikjunum á móti Tindastól. Logi var með 36 stig, 5 stoðsendingar og 3 varin skot í leik tvö sem Njarðvík vann 100-79 og skoraði síðan 30 stig í leik fjögur sem Njarðvík vann 96-71 og tryggði sér þar með 3-1 sigur í úrslitaeinvíginu. Logi skoraði því samtals 66 stig á 69 mínútum í þessum tveimur leikjum í Síkinu á Sauðárkróki og hitti úr 25 af 47 skotum sínum (53%) þar af 7 af 18 þriggja stiga skotum sínum. Í samanburði skoraði Logi samtals 25 stig á 62 mínútum í heimaleikjunum tveimur þar sem hann hitti bara úr 9 af 34 skotum sínum (26%). Logi hefur verið að leika vel með Njarðvík á nýju ári þar sem hann hefur skorað 25,2 stig að meðaltali í fimm leikjum. Logi hefur skorað 23 stig eða meira í fjórum af þessum fimm leikjum þar af hefur hann tvisvar brotið þrjátíu stiga múrinn.
Dominos-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Sjá meira