Cristiano Ronaldo bað félaga sína afsökunar eftir leikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. desember 2009 08:00 Cristiano Ronaldo fær hér rauða spjaldið í gær. Mynd/AFP
Cristiano Ronaldo var fullur iðrunar eftir 4-2 sigurleik Real Madrid á Almeria í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Ronaldo var lykilmaður í að Real kom til baka eftir að hafa lent 1-2 undir en hann lét síðan reka sig útaf í lok leiksins. Ronaldo lét líka verja frá sér víti sem hann fékk sjálfur. Það vakti athygli að Ronaldo fagnaði ekki með félögum sínum eftir að Karim Benzema hafði fylgt á eftir vítaspyrnu hans og komið Real Madrid í 3-2. „Ég var reiður sjálfum mér eftir að hafa klikkað á vítinu," sagði Ronaldo. „Mér líkar ekki að mistakast því ég er fullkomnunaristi. Ég gefst heldur aldrei upp og ég var mjög ánægður með markið hans Karims," sagði Ronaldo. Ronaldo skoraði fjórða markið sjálfur og fékk þá fyrra gula spjaldið sitt með því að fara úr treyjunni í fagnaðarlátunum. Hann fékk síðan gult spjald fjórum mínútum síðar fyrir að sparka niður Juanma Ortiz leikmann Almeria sem hafði ögrað honum. „Þetta voru ósjálfráð viðbrögð en ég veit að ég gerði mistök. Ég er bara mannlegur. Hlutir gerast í fótboltaleikjum og maður verður bara að læra af þeim. Ég hef beðið félaga mína í liðinu um að fyrirgefa mér," sagði Ronaldo sem verður í leikbanni á móti Valencia um næstu helgi.
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira