Webber vonast eftir fyrsta sigrinum 12. júlí 2009 10:26 Mark Webber náði besta tíma í tímatökum í gær. mynd: kappakstur.is
Fjórir fremstu ökumenn í stigamótinu í Formúlu 1 ræsa af stað í þýska kappaksturinn í hádeginu í dag og eru fremstu menn á ráslínu. Mark Webberer fremstur og Rubens Barrichello við hliði hans. Fyrir aftan eru Jenson Button og Sebastian Vettel, en þessir kappar berjast um titilinn og fyrir verður Lewis Hamilton, núverandi meistari. Spáð er regnskúum á meðan keppni stendur, en svipað veður hristi upp í tímatökunni í gær. "Við höfðum trú á því sem við vorum að gera og það hjálpaði. Við tókum ákvörðun um gang mála og stóðum við hana. Dæmiði gegkk upp í ruglingslegritímatöku og ég vonast eftir mínum fyrsta sigri í kappakstrinum og er íbestu stöðunni til að láta það rætast. Ég er samt viss um Brawn menn verða harðskeyttir", sagði Mark Webber um stöðu sína á ráslínunni í dag. Webber nýtur þess að vera á tiltöluega bensínþungum bíl, en sú staðreyndað hann er 14 kg þyngri gæti þó valið honum vanda í ræsingunni. Brawn bílarnir eru léttari og gæti verið snarpari af stað. Þá er Hamilton með KERS kerfið í sínum bíl sem gefur honum 80 auka hestöfl í rásmarkinu, rétt eins og Felipe Massa og Kimi Raikkönen sem eru í áttunda og níunda sæti. Spurning hvað aukaaflið hjálpar mikið í vandasamri ræsingu. Bein útsending er frá kappakstrinum á Nurburgring kl. 11:30 á Stöð 2 Sport og þátturinn Enarmarkið með öllu því besta er strax að loknu mótinu. Þátturinn er síðan endursýndur kl. 21:45 i kvöld. Sjá brautarlýsingu og nýja tölfræði
Mest lesið Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Fótbolti Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Martin missir af landsleikjunum Körfubolti Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Enski boltinn „Þriðji leikhlutinn fór með þetta“ Sport „Við ætlum að skemmta okkur í kvöld“ Körfubolti Fleiri fréttir Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira