McLaren miðlar málum í deilum 27. maí 2009 09:52 Fjöldi liða gæti aukist í 26 á næsta ári ef FIA nær sínu fram og núverandi keppnislið hætta ekki í íþróttinni.
Martin Whitmarsh, framkvæmdarstjóri McLaren segir að lið hans hafi verið einskonar sáttasemjari i deilum FIA og Formúlu 1 liða upp á síðkastið um reglubreytingar í Formúlu 1 á næsta ári. Það kemur kannski ekki á óvart þar sem liðið er með skilorðsbundinn dóm yfir sér eftir klúður og lygar í fyrsta móti ársins. Þurfa kannski að sýna FIA lit. "Við höfum verið eins og sáttasemjarar á fundum og við viljum finna milliveginn í deilum keppnisliða og FIA. Við erum með stórt lið og það er erfitt verk að ætla að skera allt niður í trog til að ný lið geti keppt 2010", sagði Martin Whitmarsh. Deilan stendur um það að FIA vill skera rekstrarkostnað í Formúlu 1 niður úr 300 miljónum punda í 40, en það þýðir að stóru keppnisliðin verða að segja upp hundruðum starfsmanna, Max Mosley telur að með núverandi fyrirkomulagi muni fleiri lið leggja upp laupanna en Honda á næstu árum. "Við höfum rætt málin innan FOTA, samtaka keppnsiliða, en ekki utan þeirra. Við vitum hvað við viljum og fylgjum því eftir", sagði Whitmarsh. McLaren Mercdes er á móti því að tvenns konar reglur verði í gangi á næsta ári, en Mosley vill að ný lið fái rýmri reglur til að ná árangri gegn því að verja minna fé til reksturs.
Mest lesið KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Körfubolti United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík Körfubolti Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Enski boltinn Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Enski boltinn Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport „Við ætlum að skemmta okkur í kvöld“ Körfubolti Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Fleiri fréttir Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira
Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík Körfubolti
Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík Körfubolti