Ný lið peð í valdatafli Max Mosley 15. júní 2009 10:05
Deilur milli Formúlu 1 liða og FIA standa enn og 8 keppnislið hóta að stofna eigin mótaröð láti FIA verða að því að nýjar reglur taki gildi á næsta ári. Þann 19. júni birtir FIA endanlegan lista yfir keppnislið 2010. Max Mosley, forseti FIA segir að keppnisliðin 8 sem sóttu samaeiginlega um þátttöku undir merkjum FOTA, samtaka núverandi keppnisliða hafi enn möguleika á að sækja um sem einstök lið og hlýta valdboði FIA. Nú hefur nýr umsækjandi stigiði fram og vill meina að stór þáttur í bröltinu öllu sé sá að FIA og Max Mosley er að nota umsóknir nýrra lið sem peð í valdatafli gangvart FOTA. "Ég tel að umsóknir keppnisliða sé hluti af valdtafli Mosley í baráttunni við FOTA liðin"; sagði Mauro Spisz, sem sótti um fyrir hönd N. Technoligy, en 15 nýjar umsóknir bárust um að komast í Formúlu 1 á næsta ári til FIA. Þrjú ný lið fengu grænt ljós, en önnur sitja eftir með sárt ennið. "Ég skil satt að segja ekki hvernig er staðið að valinu. Það voru sett ákveðinn skilyrði fyrir þátttöku og það fara ekki öll lið eftir þeim. Ég held að við séum fórnarlamb þessa stríðs á milli aðila. Tilfinning mín er sú að það hafi verið búið að ákveða fyrirfram hvaða liði fái að keppa", sagði Spisz. Nýju liðin þrjú sem fá þátttökurétt eru Manor Motorsport, Campos og USF1, en mörgum kom á óvart að fyrst nefnda liðið skyldi verða fyrir valinu, en margir þekkir aðilar í kappakstursgeiranum sóttu um. Sjá meira um nýju liðin
Mest lesið KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Körfubolti Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík Körfubolti Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Enski boltinn Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Enski boltinn „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti „Við ætlum að skemmta okkur í kvöld“ Körfubolti Fleiri fréttir Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira
Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík Körfubolti
Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík Körfubolti