Sagan segir að KR-konur vinni einvígið 3-0 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. mars 2009 16:45 Hildur Sigurðardóttir og félagar í KR eru komnar í góða stöðu. Mynd/Vilhelm
KR-konur urðu á laugardaginn fyrsta liðið í tólf ár sem vinnur opnunarleik lokaúrslita kvenna á útivelli síðan Grindavík vann fyrsta leik á útivelli árið 1997. Þau lið sem hafa unnið fyrsta leik á útivelli hafa unnið einvígið 3-0. Leikur tvö í úrslitaeinvígi Hauka og KR er í DHL-Höllinni klukkan 19.15 í kvöld. KR vann níu stiga sigur á Haukum, 52-61, í fyrsta leik úrslitaeinvígis Iceland Express deildar kvenna á Ásvöllum. KR er aðeins þriðja liðið sem kemst í 1-0 án þess að vera með heimavallarrétt og bæði hin liðin (Grindavík 1997 og Breiðablik 1995) hafa unnið einvígið 3-0 og þar með Íslandsmeistaratitlinn. KR-liðið hefur nú unnið fimm síðustu leiki sína í úrslitakeppninni eða alla leiki síðan að þær töpuðu 60-70 í Grindavík 5. mars síðastliðinn. Frá þeim tíma hefur KR-liðið unnið oddaleikinn á móti Grindavík, alla þrjá leikina í einvíginu á móti Keflavík og svo fyrsta leik lokaúrslitanna um helgina. KR-konur urðu líka í dag fyrsta alíslenska liðið sem vinnur fyrsta leik lokaúrslitanna á útivelli en í tvö fyrri skiptin sem útilið hefur komist í 1-0 var bandaríski leikmaðurinn Penny Peppas allt í öllu hjá sínu liði. Grindavík vann fyrsta leikinn í lokaúrslitunum 1997, 47-50, á móti KR í Hagaskóla 22. mars 1997. Penny Peppas skoraði þá 31 stig fyrir Grindavík en KR-liðið var án bandarísk leikmanns. Grindavík vann næstu tvo leiki, fyrst 59-47 í Grindavík og svo 62-55 eftir framlengingu í þriðja leiknum. Breiðablik vann fyrsta leikinn í lokaúrslitunum 1995, 81-98, á móti Keflavík í Keflavík 31. mars 1995. Penny Peppas skoraði þá 49 stig fyrir Breiðablik en Keflavíkurliðið var án bandarísk leikmanns. Breiðablik vann næstu tvo leiki, fyrst 61-52 í Smáranum og svo 66-53 í þriðja leiknum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Sjá meira