Fámáll og reyndi að hylja andlit sitt 16. mars 2009 19:00
Austurríkismaðurinn Josef Fritzl fékk í dag að heyra fyrir dómi vitnisburð dóttur sinnar sem hann er ákærður fyrir að hafa fangelsað í nær aldarfjórðung, nauðgað ofsinnis og alið með sjö börn. Við upphaf réttarhalda yfir Fritzl í dag gekkst hann við hluta þeirra brota sem hann er ákærður fyrir. Fritzl var fámáll og reyndi að hylja andlit sitt þegar hann kom í dómssal í dag. Hann svaraði í engu spurningum fjölmiðlamanna. Fritzl játaði fyrir dómi að hafa þvingað dóttur sína og börn til að dvelja í dýflissunni í kjallara húss síns. Hann játaði einnig á sig sifjaspell og nauðgun og að hafa skert ferðafrelsi dóttur sinnar og þeirra barna sem hún ól honum. Hann sagðist hins vegar ekki hafa orðið valdur að dauða sjöunda barnsins vegna vanrækslu líkt og hann er ákærður fyrir og sagðist ekki hafa hneppt hópinn í ánauð. Fórnarlömbin bera ekki vitni í dómssal en átta manna kviðdómur, dómarar og Fritzl sjálfur fengu í dag að sjá upptöku af vitnisburði Elísabetar, dóttur Fritzl. Á blaðamannafundi með fulltrúa dómstólsins síðdegis kom fram að ekkert yrði gefið upp um hvað kom fram þar. Búist er við úrskurði í málinu á föstudaginn.
Mál Josef Fritzl Austurríki Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira