Eiður Smári talar flest tungumál 5. janúar 2009 16:20 Eiður Smári þykir sleipur tungumálamaður NordicPhotos/GettyImages
Heimasíða Barcelona hefur gert skemmtilega úttekt á þeirri skrautlegu tungumálaflóru sem er að finna í leikmannahóp liðsins. Leikmennirnir 24 í aðalliði Barcelona tala þannig 17 mismunandi tungumál. Samkvæmt þessu er Eiður Smári liprasti tungumálamaðurinn í hópnum og ku tala átta tungumál. Fyrir utan heimamennina í Barcelona eru menn frá Mexíkó, Argentínu, Urúgæv, Brasilíu, Frakklandi, Hvíta-Rússlandi, Íslandi, Mali, Fílabeinsströndinni, Kamerún og Mexíkó í aðalliðinu. Það er vitanlega mikilvægt að knattspyrnumenn geti gert sig skiljanlega á vellinum, en fyrir utan tungumálin sem töluð eru í heimalöndum þeirra, eru leikmenn Barcelona með grunnþekkingu á ensku, ítölsku, þýsku, hollensku, dönsku, serbnesku, króatísku, grísku og nokkrum afrískum tungumálum svo eitthvað sé nefnt. Alexander Hleb talar stundum rússnesku við Yaya Toure sem lærði tungumálið þegar hann spilaði í Úkraínu. Rafael Marquez talar stundum ensku við Eið Smára og Thierry Henry því það var tungumálið sem þeir töluðu sín á milli, en talar svo frönsku við afrísku leikmennina og Eric Abidal. Eins og áður sagði er það Eiður Smári sem er í sérflokki þegar kemur að fjölda tungumála, en hann getur bjargað sér á átta mismunandi tungumálum. Móðurmálið er íslenskan og þar að auki talar hann ensku og spænsku. Hollensku og þýsku lærði Eiður þegar hann var hjá PSV Eindhoven. Eiður skilur líka katalónsku, frönsku og dönsku - frönskuna lærði hann þegar hann bjó í Belgíu þegar faðir hans Arnór Spilaði með Anderlecht. Thierry Henry kemur reyndar ekki langt á eftir Eiði Smára, en hann talar fimm tungumál og er farinn að skilja vel katalónskuna. Næstur kemur Brasilíumaðurinn Sylvinho sem talar ensku og spænsku ofan á móðurmálið portúgölsku og er svo orðinn sæmilegur í katalónskunni.
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Grindavík - Njarðvík | Stórslagur á Suðurnesjunum Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Leik lokið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira