Capello: Álagið á Barcelona-liðið ætti að hjálpa Real Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. apríl 2009 12:30 Fabio Capello, fagnar titlinum með Real Madrid 2007. Mynd/AFP
Fabio Capello, fyrrverandi þjálfari Real Madrid og núverandi landsliðsþjálfari Englendinga er á því að álagið á Barcelona-liðið gæti verið of mikið. Spænska liðið er enn með í keppni um þrjá stóra titla. Þetta segir Capello að ætti að hjálpa Real Madrid í baráttunni um spænska meistaratitilinn. Capello var í viðtali við spænska blaðið Marca fyrir Clasico-leikinn á laugardaginn þar sem Real Madrid tekur á móti Barcelona á Bernabeu. Barcelona var um tíma með tólf stiga forskot á Real Madrid en nú munar aðeins fjórum stigum á liðunum þegar aðeins fimm umferðir eru eftir. Barcelona er auk þess komið í undanúrslit Meistaradeildarinnar og úrslitaleik spænska bikarsins. „Það eru of margir stórir leikir framundan hjá þeim. Þetta er mjög hættulegt fyrir lið," sagði Capello sem gefur ekki alltof mikið fyrir breiddina í Barcelona-liðinu. „Það segja allir að Barcelona sé með tuttugu og eitthvað leikmenn í sínum hóp en sannleikurinn er bara sá að það eru fáir leikmenn sem ráða örlögum liðsins," sagði Capello. Capello gerði Real Madrid að spænskum meisturum fyrir tveimur árum en þá vann liðið upp forskot Barcelona á lokasprettinum og vann titilinn á endanum á markatölu.
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira