Alþjóðlegt efnahagsátak 25. febrúar 2009 00:01 Þjóðir heims eiga enn eftir að ná þeirri samhæfingu þjóðhagfræðilegra stefnumiða sem þarf til að reisa við hagvöxt á ný eftir Hrunið mikla 2008. Víða um heim dregur fólk núna úr útgjöldum til þess að bregðast við skertri auðlegð og af ótta við atvinnumissi. Þessi mikli drifkraftur yfirstandandi hruns atvinnu, framlegðar og viðskipta er jafnvel mikilvægari en óðagot fjármálaheimsins eftir hrun Lehman Brothers í september í fyrra. Vitanlega verður samt ekki horfið aftur til stöðunnar eins og hún var fyrir Hrunið mikla. Fjármálabólan sem náði um heim allan verður ekki og ætti ekki að verða endurvakin. Takist hins vegar löndum heims að leggjast á eitt má vega upp á móti minnkandi eftirspurn með mikilvægri aukningu fjárfestingar á þeim sviðum sem skipta heiminn hvað mestu máli: í endurnýjanlegri orku, hreinu vatni og úrgangsmálum, mengunarvörnum, heilbrigðismálum og í aukna framleiðslu matvæla til handa fátækari löndum. Bandaríkin, Evrópa og Asía hafa öll orðið fyrir verðmætatapi vegna hruns verðbréfamarkaða og fasteignaverðs. Enn hefur þó ekki komið fram áreiðanleg mæling á samdrætti auðlegðar og hvernig hann skiptist á heimsvísu. Þó má leiða að því líkur að frá hámarki eignabólunnar nemi verðmætatap í Bandaríkjunum einum nálægt 15 þúsund milljörðum dala [1.680 billjónir króna] og kannski 10 þúsund milljörðum dala [1.120 billjónir króna] í Evrópu og Asíu samanlagt. Samanlagður samdráttur auðlegðar upp á 25 þúsund milljarða Bandaríkjadala [2.800 billjónir] samsvarar rúmlega 60 prósentum af tekjum heimsins á einu ári. amdrátturinn í Bandaríkjunum einum samsvarar hærra hlutfalli í bandaríska hagkerfinu, eða um 100 prósentum af árstekjum þjóðarinnar og í Evrópu og Asíu nær samdrátturinn kannski 70 prósenta hlutfalli. Alla jafna er gert ráð fyrir að neysla hvers heimilis dragist saman um fimm sent af hverjum dal í tapaðri auðlegð [eða fimm aura af hverri krónu]. Þetta fæli í sér að samdráttur í útgjöldum heimilanna næmi í Bandaríkjunum um fimm prósentum af þjóðartekjum og um 3,5 prósentum í Evrópu og Asíu. Niðursveiflan er svo mikil að atvinnuleysi kemur til með að snaraukast og nær kannski níu til tíu prósentum í Bandaríkjunum. Og þótt auður heimilanna nái aftur fyrri stærðum og neysla aukist á ný gerist það of hægt til þess að komið verði í veg fyrir hraðan atvinnumissi og stórfelldan samdrátt framleiðslu miðað við framleiðslugetu. Því þarf að ýta undir annars konar fjárfestingu. Ein öflug leið til að styðja við heimshagkerfið og hjálpa því að standa undir framtíðarkröfum er að auka útgjöld til verkefna tengdum lykilinnviðum þjóða, aðallega samgöngum (vega- og hafnargerð, lestarsamgöngur og þess háttar), endurnýjanlegri orku (vind- og sólarorku, jarðvarma, kolefnisheimt, og víðfeðmum orkudreifingarnetum), mengunarvörnumr, vatnsveitum og vinnslu úrgangs. Færa má sterk rök fyrir samstarfi þjóða til að auka opinbera fjárfestingu sem þessa í þróunarlöndum, sér í lagi þar sem fátækt er mest. Þessi svæði, þar með talin löndin sunnan Sahara í Afríku og Mið-Asía, finna mjög fyrir heimskreppunni vegna minnkandi útflutningstekna, stöðnunar fjármagnsmarkaða og gjaldeyrisskorts. Fátæku löndin líða einnig fyrir loftslagsbreytingar á borð við tíðari þurrka vegna gróðurhúsategundaútblásturs ríkari landanna. Um leið eru þau í mikilli þörf fyrir innri uppbyggingu, sér í lagi á vega- og lestarkerfi, hvað varðar endurnýjanlegar orkulindir, vatnsveitu og úrgang. Að auki þarf í þessum löndum að stórbæta margvíslega lífsnauðsynlega þjónustu, svo sem heilbrigðisþjónustu og stuðning við matvælaframleiðslu. Vettvangur G-20 ríkjanna, sem saman mynda stærstu hagkerfi heimsins, hentar sameiginlegri stefnumörkun í þessum efnum, en næsti fundur þeirra er í Lundúnum í aprílbyrjun. Stóru hagkerfin, Bandaríkin, Evrópusambandið og Japan, ættu að koma á legg nýjum áætlunum til að fjármagna verkefni tengd uppbyggingu í fátæku löndunum. Ný útlán til þróunarlanda ættu að nema hundrað milljörðum dala [11.200 milljörðum króna] á ári hið minnsta. Nýja fjármögnunin myndi fela í sér bein langtímalán (til dæmis 40 ára lán) frá fjármögnunarstofnunum (e. export credit agencies eða ECA's) ríku landanna og færu í vegagerð, orkunet, framleiðslu endurnýjanlegrar orku, hafnargerð, ljósleiðaranet og í vatnsveitu og til úrgangsmála. G-20 ríkin ættu einnig að auka útlánagetu Alþjóðabankans, Þróunarbanka Afríku og annarra alþjóðlegra fjármálastofnana. Japan, sem á afgangssparnað, býr við sterka mynt og á mikinn gjaldeyrisforða, auk mikillar framleiðslugetu án innlendrar eftirspurnar, ætti að taka forystu í að fjármagna uppbygginguna. Aðgerðirnar geta líka um leið orðið lyftistöng fyrir japanskt efnahagslíf sem nota myndi eigin iðnframleiðslu í þágu þróunarlandanna. Með samvinnu má snúa skörpum og ógnvekjandi neyslusamdrætti í tækifæri til að fjárfesta í framtíðarheilsu heimsins. Með því að beina peningum í nauðsynlega fjárfestingu í þróunarlöndum getur heimurinn náð "þreföldum" sigri. Aukin fjárfesting og útgjöld til félagsmála í fátækum löndum efla hagkerfi heimsins alls, flýtir hagþróun og ýtir undir umhverfisvernd með fjárfestingu í endurnýjanlegri orku, betri vatnsnýtingu og vistvænum landbúnaði. (c) Project Syndicate, 2009, www.project-syndicate.org. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Markaðir Viðskipti Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Sjá meira