Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar 16. október 2026 10:00 Ég hef um árabil helgað stóran hluta ævi minnar hnefaleikum. Ég er íþróttafræðingur að mennt og hef starfað sem yfirþjálfari hnefaleika hjá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur og Mjölni, þar sem ég bar ábyrgð á þjálfun og keppnisstarfi um árabil. Sem þjálfari hef ég farið með keppendur á stórmót erlendis og m.a unnið fyrsta sigur íslands á Norðurlandamóti þar sem keppandi undir minni leiðsögn vann silfurverðlaun. Síðan þá hefur Ísland unnið Norðurlandameistaratitil í tvígang sem sýnir hversu ört íþróttin hefur stækkað og íslenskt hæfileikafólk aukið getu sína. Sjálfur hef ég keppt bæði hér heima og erlendis, unnið Íslands- og bikarmeistaratitla og verið hluti af fyrsta landsliði Hnefaleikasambands Íslands. Árið 2021 varð ég jafnframt fyrsti Icebox-meistarinn í samnefndri hnefaleikakeppni, sem hefur síðan vaxið og dafnað og rutt brautina fyrir öðru stórmóti í blönduðum bardagalistum, Glacier Fight Night sem vinir mínir og fyrrum kollegar í bardagaheiminum heldu fyrst í fyrra og einnig náð gríðarlegum vinsældum. Í dag starfa ég sem viðskiptastjóri á fjármálamarkaði og hef jafnframt lokið MBA-gráðu í viðskiptafræði. Ég er sannfærður um að sá agi, sú þrautseigja og sú markvissa vinnubrögð sem ég tileinkaði mér í hnefaleikum hafi nýst mér ekki síður við nám og störf en inni í hringnum. Fyrir mér hafa hnefaleikar því aldrei eingöngu snúist um keppni, heldur einnig um persónulegan þroska og eiginleika sem nýtast langt út fyrir íþróttina. Þótt keppnishanskarnir séu nú komnir á hilluna hefur áhuginn á íþróttinni aldrei dvínað. Ég hef fylgst stoltur með íslenskum atvinnuhnefaleikamönnum á borð við Kolbein Kristinsson, Emin Kadri Eminsson og Valgerði Guðnadóttur, sem hafa þurft að leita út fyrir landsteinana til að stunda atvinnu sína og nú síðast Eriku Nótt sem þreytti frumraun sína í atvinnumennsku nú síðustu helgi. Allt felur það í sér aukinn kostnað, flækjustig og hindranir sem íslenskir íþróttamenn í mörgum öðrum greinum þurfa ekki að glíma við. Hvað mig sjálfan varðar, þá lifir með mér sá draumur að fá tækifæri til að leggja íþróttinni lið á nýjan hátt, þar sem ég get nýtt reynslu mína og þekkingu til að hafa jákvæð áhrif á framtíð hennar og stuðlað að áframhaldandi vexti og framþróun, án þess að óþarfar skorður séu settar á möguleika hennar Hættuleg íþrótt en réttlætir það bann? Í vikunni lýsti Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, sem jafnframt fer með yfirstjórn íþróttamála að því leiti sem ríkið lætur þau til sín taka, því yfir að hún hygðist ekki styðja frumvarp um lögleiðingu atvinnuhnefaleika á Íslandi. Rökin voru þau að íþróttin væri of hættuleg vegna þeirrar meiðslahættu sem henni fylgir. Ég skil þau sjónarmið vel. Það væri bæði óábyrgt og ósanngjarnt gagnvart íþróttinni sjálfri að gera lítið úr hættunni. Hnefaleikar og bardagaíþróttir yfir höfuð eru áhættusöm íþrótt og alvarlegir áverkar, ekki síst á höfði, eru raunverulegt áhyggjuefni. Það veit ég bæði af eigin reynslu og eftir áralangt starf sem þjálfari. En það er grundvallarmunur á því að viðurkenna áhættu og að telja hana sjálfkrafa réttlæta lögbann. Tíðni meiðsla tengd íþróttinni virðist stjórna þessari umræðu, er skoðanamyndandi og málar upp óréttláta mynd af íþróttinni í heild sinni. Við mat á meiðslatíðni þarf líka að gæta samræmis í mælikvörðum. Tölfræði um meiðsli á hverjar 1.000 keppendaþátttökur getur gefið aðra mynd en tölfræði sem tekur mið af kepptum klukkustundum þegar bornar eru saman einstaklingsíþróttir við liðaíþróttir þar sem stórmunur er á fjölda keppenda í hverri keppni. Þá þarf jafnframt að skoða alvarleika áverka og hugsanlegar langtímaafleiðingar. Meiðslatíðni íþróttarinnar er þó ekki eitthvað sem ég vil rífast við neinn um. Ég ætla ekki- og mun aldrei halda því fram að hnefaleikar séu hættuminni en aðrar íþróttir. Þvert a móti geri ég sem bæði fyrrum keppandi og þjálfari mér fulla grein fyrir áhættunni og mögulegum langtímaáhrifum tíðra höfuðhögga. Það sem ég tel hins vegar eðlilegt að spyrja er hvort sú áhætta sem íþróttinni fylgir sé þess eðlis að réttlætanlegt sé að banna fullorðnum einstaklingum að stunda hana í atvinnuskyni, í stað þess að setja starfseminni skýran og strangan öryggisramma. Það þarf ekki að sækja slíka fyrirmynd langt, en nágrannaþjóð okkar, Norðmenn gerðu einmitt það við lögleiðingu atvinnumannahnefaleika í Noregi árið 2015 sem til þá hafði verið ólöglegt síðan 1981. Í stuttu máli taldi Norska ríkisstjórnin áhættuna ekki nægilega ástæðu til að viðhalda lögbanninu. Þess í stað skyldi setja samræmdar öryggisreglur og leyfa einstaklingum að taka upplýsta ákvörðun um þátttöku. Norska leiðin byggist á því að viðurkenna áhættuna sem fylgir íþróttinni, en leitast við að draga úr henni með lögbundnum skilyrðum og eftirliti. Forsenda sem íslensk stjórnvöld skulda íslenskum íþróttamönnum að taka til alvarlegrar og málefnalegrar skoðunar, í stað þess að slá það út af borðinu án frekari umhugsunar. Þegar áhættan er hluti af atvinnunni Ég starfa í dag sem viðskiptastjóri hjá fjármálafyrirtæki. Samhliða því starfa ég sem áhættuleikari í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, starf sem mér bauðst ekki síst vegna reynslu minnar af bardagaíþróttum. Í þeirri vinnu hef ég meðal annars orðið fyrir bíl, látið kveikja í líkama mínum, fallið úr mikilli hæð og tekið ótal högg og byltur fyrir framan myndavél. Ég geri mér fulla grein fyrir því að þessi vinna er ekki hættulaus. Engu að síður er mér heimilt að stunda hana, afla mér tekna og greiða af þeim skatta til íslenska ríkisins. Hvers vegna? Vegna þess að samfélagið viðurkennir að fullorðnir einstaklingar geti tekið að sér áhættusöm störf, að því gefnu að viðeigandi öryggisráðstafanir séu gerðar. Ég treysti á samstarfsfólk mitt og áhættuleiksstjórnanda, sem vinna að því að gera aðstæður eins öruggar og kostur er en umfram allt annað treysti ég á sjálfan mig og mína reynslu sem ég byggi störf mín á sem áhættuleikari. Ég stjórna ferðinni sjálfur og get jafnframt hafnað verkefnum sem ég tel mig ekki ráða við. Áhættan hverfur ekki, en við reynum að lágmarka hana með fagmennsku, undirbúningi og skýrum verkferlum. Þessi samanburður er auðvitað ekki fullkominn. Í atvinnuhnefaleikum eru högg hluti af keppninni sjálfri, en í áhættuleik er markmiðið að skapa sjónræna blekkingu án þess að valda raunverulegum áverkum. Engu að síður vekur hann mikilvæga spurningu: Hvers vegna teljum við rétt að stýra áhættu í einni atvinnugrein með öryggisreglum en útiloka aðra með lögbanni? Öryggi byggist á þekkingu, ekki banni einu saman Sem fyrrverandi yfirþjálfari þekki ég vel þá ábyrgð sem hvílir á þjálfurum og öðrum fagaðilum. Ég hef sótt fræðslu um höfuðáverka, heilahristing og mögulegar afleiðingar endurtekinna högga á heilann. Ég hef notað þá þekkingu til að bæta þjálfun minna skjólstæðinga, miðla forvörnum og stöðva keppni ef ég met sem svo að keppandi minn sé í hættu staddur. Slík þekking er grundvallarforsenda ábyrgra hnefaleika. Lögleiðing atvinnuhnefaleika þarf ekki að fela í sér afnám öryggiskrafna. Þvert á móti gæti hún skapað grundvöll fyrir skýrt regluverk um læknisskoðanir, keppnisleyfi, eftirlit, tímabundin keppnisbönn eftir höfuðáverka og ábyrgð mótshaldara líkt og Norðmenn gerðu fyrir rúmum 10 árum síðan. Þetta eru atriði sem eiga að vera í forgrunni umræðunnar. Við eigum ekki að fela okkur á bak við þá hugmynd að einstaklingar sem velja áhættusama íþrótt skilji ekki hættuna. Við eigum að tryggja að þeir hafi aðgang að bestu mögulegu upplýsingum, faglegri umgjörð og öryggisráðstöfunum. Jafnræði og meðalhóf Það sem veldur mér mestum vonbrigðum við afstöðu ráðherra er ekki að hún hafi áhyggjur af öryggi íþróttamanna. Þær áhyggjur eru fullkomlega réttmætar. Það er hins vegar ástæða til að spyrja hvort algert bann við atvinnuhnefaleikum sé hóflegt úrræði þegar aðrar áhættusamar atvinnugreinar eru heimilaðar undir ákveðnum skilyrðum. Í stjórnsýslu ber að gæta jafnræðis og meðalhófs. Þótt þessar meginreglur leiði ekki sjálfkrafa til þess að atvinnuhnefaleikar skuli lögleiddir ættu sjónarmið um samræmi, málefnalegan rökstuðning og vægari úrræði að hafa vægi þegar stjórnvöld móta afstöðu til framtíðar íþróttarinnar. Það á ekki síst við þegar fyrir liggur fordæmi frá Noregi, þar sem sambærileg umræða leiddi til þess að atvinnuhnefaleikar voru lögleiddir undir ströngum öryggisskilyrðum. Ég er ekki að fara fram á að öryggissjónarmiðum verði vikið til hliðar. Ég er að biðja um að þau verði metin með sama gagnrýna og málefnalega hætti og í öðrum atvinnugreinum. Frelsi til að velja og ábyrgð til að vernda Ég vænti þess ekki að Inga Sæland breyti persónulegri afstöðu sinni til atvinnuhnefaleika. Hún á fullan rétt á sinni skoðun, rétt eins og við hin. En þegar persónuleg afstaða verður grundvöllur opinberrar stefnumótunar þarf að gera meiri kröfur til rökstuðnings en svo að vísa eingöngu til þess að íþrótt sé hættuleg. Spurningin er ekki hvort atvinnuhnefaleikar séu hættulegir. Það vitum við að þeir eru. Spurningin er hvort við getum skapað faglega og örugga umgjörð utan um íþróttina, þar sem fullorðnir einstaklingar fá tækifæri til að taka upplýsta ákvörðun um eigin framtíð. Við eigum ekki að þurfa að velja á milli frelsis og öryggis. Við eigum að gera kröfu um hvort tveggja. Höfundur er fyrrum keppandi og þjálfari ólympískra hnefaleika. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Sjá meira
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun