Hörður Axel: Við spiluðum bara ekki körfubolta. Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. apríl 2010 21:52 Hörður Axel Vilhjálmsson. Mynd/Daníel
Hörður Axel Vilhjálmsson var með 11 stig og 7 stoðsendingar fyrir Keflavík í kvöld en það dugði þó skammt þegar liðið tapaði með 22 stigum í Hólminum í öðrum úrslitaleik Iceland Express deild. Hörður Axel var líka ekki sáttur í viðtali við Hörð Magnússon í útsendingu Stöð 2 Sport. „Þetta var bara skelfing hjá okkur og við vorum bara alveg glataðir. Það er ekki hægt að hafa mörg orð um frammistöðuna hjá okkur en þeir eiga alltaf eftir að koma í Keflavík sama hvernig þessi leikur fór," sagði Hörður Axel. „Þetta var ekkert vanmat. Við mættum ekki tilbúnir á meðan að þeir mættu brjálaðir og slógu okkur strax út af laginu. Við áttum aldrei möguleika á móti þeim í þessum leik en það verður öðruvísi í næsta leik," lofaði Hörður. Hann var ekkert á því að Jeb Ivey hefði gert mikið í leiknum en Ivey lenti í Hólminum rétt fyrir leik og varð með 13 stig og 4 stoðsendingar í leiknum. „Jeb Ivey var ekkert erfiðari en aðrir hjá þeim. Hann er svipaður spilari og Sean en við spiluðum bara ekki vörn á neinn í dag. Það skipti ekki máli hvort hann hét Jeb Ivey eða Jón. Við spiluðum bara ekki körfubolta," sagði Hörður að lokum.
Dominos-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Sjá meira