Barrichello vongóður um framfaraskref 17. maí 2011 18:23 Rubens Barrichello gafst færi á að reyna Williams bílinn í rigningu á æfingu í Tyrklandi á dögunum. Mynd: Getty Images/Bryn Lennon
Williams liðið hefur ekki riðið feitum hesti frá mótum ársins, en reynsluboltinn Rubens Barrichello sem ekur með liðinu ásamt nýliðanum Pastor Maldonado vonast eftir að Williams bíllinn verði betri á Katalóniu brautinni á Spáni um næstu helgi, en í fyrstu fjórum mótum ársins. Tæknistjóri liðsins, Sam Michael segir að Williams hafi unnið að því að útfæra nýja afturvængi, sem liðið prófaði á æfingum á Istanbúl Park brautinni í Tyrklandi á dögunum. Áætlun liðsins er að nota þessa nýju vængi um helgina auk fleiri nýjunga. Barrichello telur að brautin sem notuð er um helgina og er nærri Barcelona sé frábær braut og ein af þeim sem ökumenn þekkja hvað best. „Það verður fróðlegt að sjá hve mikið önnur lið og ökumenn hafa þróast síðan við æfðum á brautinni í mars. Ég vona að við getum tekið gott framfaraskref með endurbótum sem verða í bílnum. Ég er jákvæður á að það verði rauninn", sagði Barrichello í fréttatilkynningu frá Williams. Hinn spænskumælandi Maldonado frá Venúsúela ekur hinum Williams bílnum. „Þetta verður áhugavert mót, þar sem okkur hefur gefist tími til að þróa bílinn. Við erum með meiri gögn, þar sem við æfðum þar í vetur og það ætti að gera hlutina auðveldari en ella. Þetta verður auðveldara fyrir mig, þar sem ég hef ekið FW33 bílnum á brautinni", sagði Maldonado. „Við munum vinna að því að bæta bílinn með nýju hlutunum og sjá hvernig þetta kemur út. Ég kann vel við brautina og ég tel brautina eina af þeim bestu, hún er tæknileg og góð blanda af háhraða og hægum beygjum. Trúlega er beygja þrjú í uppáhaldi, en hún er mjög löng og hröð", sagði Maldonado.
Formúla Mest lesið Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Körfubolti Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Allir sem hylji munninn verði reknir út af Fótbolti Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Enski boltinn Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Fótbolti Sara og fjölskylda örugg en staðan hræðir Fótbolti „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Enski boltinn „Hjartað mitt hætti næstum því að slá“ Enski boltinn Sjáðu hetjudáðir Sesko, hornamörk Arsenal og ófarir Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Hamilton bjartsýnn: „DNA-ið mitt er í þessum bíl“ „Stormur í vatnsglasi“ Lewis Hamilton finnst skemmtilegra að keyra nýja F1-bílinn Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Sjá meira