Cesc: Ætla að spila með Xavi en ekki að koma í staðinn fyrir hann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. ágúst 2011 13:30 Cesc Fabregas. Mynd/Nordic Photos/Getty
Cesc Fabregas er í viðtali inn á heimasíðu Barcelona þar sem hann tjáði sig um atburði síðustu daga en hann var kynntur sem leikmaður félagsins á mánudaginn og vann síðan sinn fyrsta titil á miðvikudagskvöldið. „Ég hef verið undir mikilli pressu síðustu mánuði og það hefur tekið á andlega. Þetta er loksins gengið í gegn og ég er mjög ánægður með að vera kominn aftur til Barca," sagði Cesc Fabregas. „Það var mín ákvörðun að fara frá Barcelona á sínum tíma og ég átti aldrei von á því að spila fyrir aðallið Barcelona, ekki einu sinni í mínum viltustu draumum. Ég bjóst aldrei við að fá að upplifa svona dag eins og mánudaginn, ekki sem krakki og ekki þegar ég var að spila með Arsenal," sagði Fabregas. „Ég er enn mjög ungur og á mín bestu fótboltaár eftir. Ég á líka enn eftir að læra mikið og vonast eftir því að þroskast sem fótboltamaður hjá Barcelona," sagði Fabregas en hann er ekki kominn til þess að taka við af Xavi. „Ég tel að Xavi eigi enn eftir nokkur góð ár. Hann gerir ótrúlega hluti inn á vellinum og ég er ekki kominn hingað til að koma í staðinn fyrir hann. Ég kom hingað til að spila með Xavi, til að keppa um stöðu við Xavi og til að vinna titla með Xavi. Þetta á alveg eins við þá Andres Iniesta og Thiago því saman myndum við mjög góðan hóp," sagði Fabregas. Cesc rifjar líka upp þegar hann fékk áritaða treyju frá Pep Guardiola þáverandi leikmanni Barcelona og núverandi þjálfara liðsins. Á peysunni stóð: „Þú verður leikmaður númer 4 hjá Barca," og á mánudaginn rættist þessi óvenjulega spá Guardiola en Fabregas var þarna bara fjórtán ára.
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira