Helstu markaðir Evrópu eru komnir í rauðar tölur eftir nokkuð góða hækkun þegar viðskiptin hófust í morgun. Þá benda utanmarkaðsviðskipti til þess að markaðir í Bandaríkjunum muni opna í mínus eftir hádegið.
Í frétt um málið á BBC segir að FTSE vísitalan sé nú 0,8% í mínus eftir að hafa verið um 2% í plús snemma í morgun. Dax vísitalan í Frankfurt er komin í mínus 1,2% og Cac 40 í mínus 2,3%.
Það eru einkum hlutir í bönkum sem valda þessum viðsnúningi til hins verra en þeir hafa fallið um 5% að meðaltali í morgun.
Eins og staðan er í utanmarkaðsviðskiptum í Bandaríkjunum í augnablikinu munu helstu vísitölur þar lækka um 1% þegar viðskiptin hefjast klukkan 13.30 að okkar tíma.
Þessar sveiflur innan dagsins að undanförnu benda til þessa að fjárfestar séu mjög taugatrekktir. Þannig var tilhæfulaus orðrómur í gærdag þess valdandi að markaðir tóku djúpa dýfu. Orðrómurinn var á þá leið að Frakkland væri að missa topplánshæfiseinkunn sína. Yfirlýsingar þriggja stóru matsfyrirtækjanna um að þetta væri bull höfðu ekkert að segja gegn taugaveikluninni.
Evrópa komin í rautt, dökkt útlit vestanhafs

Mest lesið

Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist
Viðskipti innlent


Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum
Viðskipti erlent

Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna
Viðskipti innlent

Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka
Viðskipti innlent

Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun
Viðskipti innlent

Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent
Viðskipti innlent

Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið
Viðskipti innlent

Síðasti dropinn á sögulegri stöð
Viðskipti innlent

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent