Þrír erlendir leikmenn ekki nóg fyrir Njarðvík á móti KR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2011 20:58 Margrét Kara Sturludóttir hjá KR.
KR-konur unnu tíu stiga sigur á Njarðvík, 70-60, í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í DHL-höllinni í kvöld en þetta var síðasti leikurinn áður en deildinni er skipt í tvennt, í A- og B-deild. Njarðvík lék þarna sinn fyrsta leik með pólska miðherjann Julia Demirer innanborðs en fyrir hjá liðinu voru bandaríska stelpan Shayla Fields og lettneska stelpan Dita Liepkalne. Chazny Morris skoraði 16 stig fyrir KR, Margrét Kara Sturludóttir var með 15 stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar, Signý Hermannsdóttir skoraði 11 stig og Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir var með 9 stig. Erlendu leikmennirnir skoruðu saman 41 stig hjá Njarðvík en Shayla Fields var stigahæst með 19 stig. Dita Liepkalne skoraði 13 stig og tók 10 fráköst og Demirer var með 9 stig og 14 fráköst í sínum fyrsta leik í Njarðvíkurbúningnum. Arnína Lena Rúnarsdóttir skoraði 12 stig fyrir Njarðvíkurliðið. KR var 21-14 yfir eftir fyrsta leikhlutann og með tíu stiga forskot í hálfleik, 39-29. Njarðvík minnkaði muninn með ágætum þriðja leikhluta og staðan var 52-47 fyrir KR fyrir lokaleikhlutann. KR-liðið hafði síðan betur í lokaleikhlutanum og tryggði sér góðan sigur.
Dominos-deild kvenna Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Sport McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Enski boltinn Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Fleiri fréttir LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Sjá meira