Hreiðari heitt í hamsi Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. mars 2012 13:59 Hreiðar Már Sigurðsson fyrir Landsdómi í dag. „
Mér bara blöskrar," sagði Hreiðar Már Sigurðsson um málflutning þeirra fulltrúa Seðlabankans sem hafa borið vitni í Landsdómi. Arnór Sighvatsson, fyrrverandi aðalhagfræðingur Seðlabankans og núverandi aðstoðarbankastjóri, sagði þegar hann bara vitni að merki hafi verið komin fram árið 2005 um að íslensku bankarnir væru í hættu. „Hingað fáið þið aðstoðarseðlabankastjóra landsins sem segist hafa séð það fyrir árið 2005 að bankarnir voru að fara á hausinn," sagði Hreiðar Már, sem var bersýnilega reiður. Davíð Oddsson þáverandi seðlabankastjóri hafi mælt á svipaða vegu. „Hvernig stendur þá á því að hann tók ákvörðun um það að setja 800 milljónir evra til að bjarga Glitni. Þetta bara gengur ekki upp," sagði Hreiðar. Hreiðar sagði líka að það hefði verið pólitísk ákvörðun að leyfa Kaupþingi ekki að gera upp í evrum. Sú ákvörðun hefði komið sér illa fyrir bankann. Við lok vitnaleiðslunnar sagði Hreiðar Már að Kaupþing hefði fallið við það að neyðarlögin voru sett. „Þú getur ekki sett lög sem breyta eftirá röð kröfuhafa. Eftir að þau lög eru sett er ekki hægt að reka alþjóðlegan banka. Það vill enginn aðili hafa viðskipti við okkur daginn eftir að slík lög eru sett," sagði Hreiðar Már.
Landsdómur Mest lesið „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Erlent Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Innlent Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Innlent Vilja eyða óvissunni um bein Jónasar Innlent Brotist inn í Reykjabú og annað „manifestó“ skilið eftir Innlent Fasteignamat lækkar að raunvirði Innlent Furðar sig á því að þeir sem vildu minnka báknið fjölgi ráðum Innlent Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent Fleiri fréttir Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Bein útsending: Lyklaskipti í borginni Horfði á gamla fundi til að undirbúa sig „Góður dagur fyrir nýja tíma í Reykjavík“ Fyrsti fundur borgarstjórnar, ný rannsóknarnefnd og bein Jónasar Rannsóknarnefnd mun skoða aðstæður barna á einkaheimilum Furðar sig á því að þeir sem vildu minnka báknið fjölgi ráðum Fasteignamat lækkar að raunvirði „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Bein útsending: Kynna fasteignamat ársins 2027 Brotist inn í Reykjabú og annað „manifestó“ skilið eftir Breyta hlaupaleiðum í Reykjavíkurmaraþoninu Vilja eyða óvissunni um bein Jónasar Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Sjá meira