Dramatískt jafntefli hjá Füchse Berlin | Stórsigur Kiel Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. mars 2012 18:11 Johannes Sellin skoraði jöfnunarmark Füchse Berlin. Nordic Photos / Getty Images
Füchse Berlin, lið Dags Sigurðssonar, náði jafntefli gegn Göppingen á heimavelli eftir dramatískar lokamínútur. Lokatölur voru 30-30. Kiel vann sinn leik en meistararnir í Hamburg gerðu óvænt jafntefli. Göppingen hafði forystu í hálfleik, 15-14, og leiddi lengst af í þeim síðari. Heimamenn í Berlín náðu þó að vinna sig aftur inn í leikinn og jafna metin þegar sjö mínútur voru eftir. Jafnt var á öllum tölum eftir þetta en eftir spennuþrungnar lokamínútur komst Füchse Berlin í sókn þegar um 20 sekúndur voru eftir. Ivan Nincevic náði að skora um leið og leiktíminn rann út en markið var ekki dæmt gilt þar sem Dagur var búinn að biðja um leikhlé. Leikurinn byrjaði aftur þegar sex sekúndur voru til leiksloka og var boltanum spilað út í hægra hornið þar sem Johannes Sellin fór inn og skoraði jöfnunarmarkið. Alexander Petersson er meiddur og tók því ekki þátt í leiknum en Füchse Berlin er í öðru sæti með 36 stig. Flensburg og Hamburg koma næst með 34 stig en síðarnefnda liðið gerði óvænt jafntefli við nýliða Hüttenberg á útivelli, 26-26. Kiel er enn á toppi deildarinnar með fullt hús stiga, 44 talsins, eftir stórsigur á Hannover-Burgdorf á útivelli, 43-24. Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk fyrir Kiel en þjálfari liðsins er Alfreð Gíslason. Vignir Svavarsson skoraði þrjú mörk fyrir Hannover-Burgdorf, Hannes Jón Jónsson tvö og Ásgeir Örn Hallgrímsson eitt.
Handbolti Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Fleiri fréttir Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít Sjá meira