Íslensku stelpurnar töpuðu í vítakeppni gegn heimakonum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. mars 2012 18:30 Íslensku stelpurnar syngja þjóðsönginn gegn Rúmenum í fyrra. Mynd / Facebook-síða Íshokkísambandsins
Íslenska kvennlandsliðið í íshokkí beið lægri hlut gegn Suður-Kóreu í B-riðli 2. deildar heimsmeistaramótsins í dag. Framlengingu og vítakeppni þurfti til að fá fram úrslit eftir að jafnt var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma. Kóreska-liðið komst yfir snemma í öðrum leikhluta en Anna Sonja Ágústsdóttir jafnaði metin skömmu síðar. Á heimasíðu íshokkísambandsins kemur fram að leikurinn hafi verið mjög jafn en íslenska liðið verið sterkara ef eitthvað var. Í vítakeppninni tókst Suður-Kóreu að skora einu sinni en íslensku stelpunum ekki. Íslenska liðið fær þó eitt stig af þremur mögulegum þar sem jafnt var að loknum venjulegum leiktíma. Íslensku stelpurnar eru því með fjögur stig í riðlinum að loknum tveimur leikjum. Liðið lagði Belga að velli 2-1 í gær. Steinunn Sigurgeirsdóttir var valin besti leikmaður íslenska liðsins í leiknum í dag en Eva Karvelsdóttir gegn Belgum í gær. Næsti leikur íslenska liðsins verður gegn Pólverjum á þriðjudag. Ljóst er að við harðan reip verður að draga því Pólverjar hafa unnið báða leiki sína í deildinni, meðal annars 7-0 stórsigur á Belgum.
Erlendar Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Handbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Handbolti Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Formúla 1 Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Sport Fleiri fréttir LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Aftur eins marks tap en nú tekur EM við Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Hófí Dóra lauk gráðu í líftækni og vann svo fyrsta mót í Finnlandi Björgvin aftur í Breiðholtið ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð „Hefurðu enga sómakennd?“ Hefur Ben Simmons náð botninum? Dagskráin í dag: Bland í poka úr ýmsum áttum Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Russell á ráspól í fyrramálið Andy Murray þjálfar erkióvininn Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Sjá meira