Guðjón Valur með átta mörk þegar AG sló út Evrópumeistara Barcelona Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. apríl 2012 19:32 Guðjón Valur og félagar höfðu ástæðu til að fagna líkt og eftir fyrri leikinn. Mynd / Facebook-síða AG
Íslendingaliðið AG Kaupmannahöfn gerði sér lítið fyrir og sló Barcelona út úr Meistaradeildinni í handbolta í dag. AG tapaði síðari viðureign sinni gegn Barcelona 36-33 en vann sex marka sigur í fyrri leiknum. Evrópumeistarar Barcelona höfðu frumkvæðið í fyrri hálfleik en AG var aldrei langt undan. Kaupmannahafnarliðið náði góðum spretti undir lok hálfleiksins og var staðan í hálfleik jöfn 17-17. Gestirnir byrjuðu betur í síðari hálfleiknum og stóðu leikar 25-27 þegar tólf mínútur lifðu leiks. Þá settu heimamenn í gírinn, skoruðu 5 mörk í röð á afar skömmum tíma og komust 30-27. Þá tók Magnus Anderson, þjálfari liðsins, leikhlé og endurskipulagði leik sinna manna. Arnór Atlason, Guðjón Valur Sigurðsson, Ólafur Stefánsson og Snorri Steinn Guðjónsson stigu öðrum fremur upp á lokamínútunum og sáu til þess að Börsungar náðu ekki að auka forskot sitt nægilega. Sex síðustu mörk gestanna voru úr smiðju Íslendinganna. Leiknum lauk með sigri Barcelona 36-33. Fyrri leik liðanna í Kaupmannahöfn lauk með 29-23 sigri AG sem fer áfram samanlagt 62-59. Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur AG-manna með átta mörk. Ólafur Stefánsson skoraði sjö, Snorri Steinn Guðjónsson fjögur og Arnór Atlason þrjú mörk. Siarhei Rutenka var markahæstur heimamanna með níu mörk. AG hefur því tryggt sér sæti í undanúrslitum keppninnar. Undanúrslitin og úrslitin fara fram í Köln helgina 26.-27. maí.
Mest lesið Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Enski boltinn „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Enski boltinn Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Aston Villa - Man. United | Rauðu djöflarnir heimsækja heitasta lið deildarinnar Enski boltinn Fleiri fréttir Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Sjá meira