Kiel í úrslit þýsku bikarkeppninnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. maí 2012 14:41 Aron Pálmarsson í leik með Kiel. Nordic Photos / Getty Images
Kiel tryggði sér í dag sæti í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar eftir góðan sigur á Hamburg í undanúrslitum, 27-25. Alfreð Gíslason og lærisveinar hans eiga því möguleika á að bæta öðrum titli í safnið á morgun, aðeins nokkrum dögum eftir að liðið tryggði sér þýska meistaratitilinn. Kiel er með fullt hús stiga í deildinni og er einnig komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu. Hamburg byrjaði þó betur í dag og var með frumkvæðið á upphafsmínútunum. Kiel náði þó undirtökunum og leiddi í hálfleik, 15-13. Hamburg komst aftur yfir í seinni hálfleik en svo var allt í járnum á lokamínútum leiksins. En eins og svo oft áður reyndist franski markvörðurinn Thierry Omeyer hetja sinna manna. Hann varði þrjú góð skot frá leikmönnum Hamburg á síðustu tveimur mínútum leiksins en Hamburg skoraði reyndar ekkert mark á síðustu sex mínútum leiksins. Daniel Narcisse kom Kiel yfir, 26-25, með gegnumbroti þegar fjórar mínútur voru eftir og Marcus Ahlm innsiglaði sigurinn af línunni eftir glæsilega sendingu Kim Andersson á lokamínútunni. Aron Pálmarsson komst ekki á blað hjá Kiel að þessu sinni. Liðið mætir annað hvort Flensburg eða Lübbecke í úrslitaleiknum í Köln á morgun.Uppfært: Flensburg komst í úrslitaleikinn síðdegis með fimm marka sigri á Lübbecke, 29-24.
Handbolti Mest lesið Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Enski boltinn Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Enski boltinn Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Enski boltinn Fleiri fréttir Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Sjá meira