Ekkert lát er á verðlækkunum á olíu 1. júní 2012 07:22
Ekkert lát er á verðlækkunum á heimsmarkaðsverði á olíu. Sérfræðingar reikna með að sú þróun haldi áfram fram á sumarið. Tunnan af Brent olíunni er komin undir 102 dollara og hefur verð hennar ekki verið lægra síðan í desember á síðasta ári. Verð á bandarísku léttolíunni er komið undir 87 dollara á tunnuna og hefur ekki verið lægra síðan í október í fyrra. Í frétt um málið á vefsíðunni Forexpros segir að reiknað sé með frekari lækkunum á olíuverðinu á næstunni. Helsta ástæðan fyrir þessari þróun er að hráolíubirgðir Bandaríkjanna uxu mun meir en gert var ráð fyrir í næstsíðustu viku maímánaðar og standa nú í tæpum 400 milljónum tunna. Hafa brigðirnar ekki verið meiri síðan árið 1990. Þetta er talið merki um að efnahagur Bandaríkjanna sé ekki að ná sér á strik eins og væntingar voru um. Áframhaldandi erfiðleikar á evrusvæðinu þar sem vangaveltur eru komnar upp um að Spánn þurfi að leita á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa einnig haft áhrif til lækkunar á olíuverðinu.
Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Flugmenn og Icelandair funda á morgun Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira