Didier Dinart spilar með Róberti og Ásgeiri Erni í París Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júní 2012 13:00 Didier Dinart. Mynd/DIENER
Íslensku landsliðsmennirnir Ásgeir Örn Hallgrímsson og Róbert Gunnarsson verða liðsfélagar franska varnartröllsins Didier Dinart á næstu leiktíð. Didier Dinart hefur gert eins árs samning við franska félagið Paris Saint-Germain Handball sem safnar nú liði fyrir átök vetrarins. Didier Dinart er leikjahæsti landsliðsmaður Frakka frá upphafi og hefur verið lengi talinn vera besti varnarmaður í heimi. Hann hefur spilað með spænska liðinu BM Ciudad Real undanfarin níu ár en gerir nú eins árs samning við Paris Saint-Germain. Didier Dinart er einn sigursælasti leikmaður allra tíma en með Frökkum hefur hann orðið þrisvar sinnum Heimsmeistari, tvisvar sinnum Evrópumeistari og einu sinni Ólympíumeistari. Þá er Dinart búinn að vinna Meistaradeildina þrisvar sinnum á ferlinum og hefur alls orðið ellefu sinnum meistari í Frakkland eða á Spáni. Frakkarnir hafa einnig samið við króatísku skyttuna Marko Kopljar sem er orðinn 26 ára gamall en hefur spilað í heimalandinu allan sinn feril. Kopljar varð króatískur meistari í áttunda sinn með Croatia Osiguranje Zagreb í vetur. Ásgeir Örn kemur til liðsins frá Hannover-Burgdorf en Róbert hefur spilað með Rhein-Neckar Löwen síðustu ár. Serbinn Mladen Bojinovic, Spánverjinn Antonio Garcia Robledo og franski hornamaðurinn Samuel Honrubia hafa einnig samið við liðið sem ætlar sér stóra hluti næsta vetur.
Handbolti Mest lesið Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Fleiri fréttir Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Sjá meira