Barcelona hefur borgað tæplega 16 milljarða fyrir 12 bakverði á 19 árum Arnar Björnsson skrifar 6. júlí 2012 21:15 Nýjasti liðsmaður Barcelona, Jordi Alba. Nordicphotos/Getty
Þrátt fyrir að Barcelona eigi einn frægasta fótboltaskóla heims hafa ekki margir bakverðir komist þaðan í aðallið félagsins. La Masia fótboltaskólinn hefur útskrifað fjöldann allan af leikmönnum í aðrar stöður á vellinum. Katalóninn Sergi Barjuán lék í mörg ár í vinstri bakvarðarstöðunni og nokkrir hafa reynt fyrir sér í þeirri stöðu. Barcelona keypti á dögunum Jordi Alba fyrir 14 milljónir evra en hann sló í gegn með Spánverjum á síðasta Evrópumóti. Alba er fæddur í L'Hospitalet de Llobregat, borg sem er suðvestur af Barcelona. Hann var á mála hjá Barcelona til 16 ára aldurs þegar hann var látinn fara. Alba, sem segja má að snúi heim á leið, tekur stöðu Frakkans Eric Abidal sem er frá keppni vegna veikinda í lifur. Fyrir í hægri bakvarðarstöðunni er Brasilíumaðurinn Daniel Alves en framtíðarmaður í þeirri stöðu er Martín Montoya, 21 árs og sem hefur þegar spilað með aðalliðinu. Það verður því varla langt að bíða að báðir bakverðir Barcelona verði fyrrverandi nemendur úr La Mesia skólanum sem ætti að spara Börsungum skildinginn. Spænska íþróttablaðið Marca reiknaði út að frá 1997 hafi Barcelona borgað 100 milljónir evra fyrir 12 bakverði. Það svarar til tæplega 16 milljarða íslenskra króna.
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Grindavík - Njarðvík | Stórslagur á Suðurnesjunum Körfubolti Valur - Ármann | Halda Valsarar sigurgöngunni áfram? Körfubolti Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira