David Villa í leikmannahópi Barcelona fyrir United-leikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. ágúst 2012 18:45 David Villa. Mynd/Nordic Photos/Getty
David Villa er kominn í leikmannahóp Barcelona í fyrsta sinn í átta mánuði en spænski landsliðsframherjinn verður með liðinu í æfingaleikjum á móti Manchester United í Gautaborg á morgun og Dinamo Búkarest þremur dögum síðar. Leikur Manchester United og Barcelona verður í beinni á Stöð 2 Sport 3 á morgun. Tito Vilanova valdi Villa í hópinn sinn sem er reyndar stór því alls fara 24 leikmenn með í þetta ferðlag liðsins. Þetta eru síðustu æfingaleikir Barca fyrir spænsku úrvalsdeildina sem hefst helgina 18. og 19. ágúst. „Það lítur út fyrir að hann sé í góðu formi þrátt fyrir svona langa fjarveru," sagði Andres Iniesta, liðsfélagi David Villa hjá Barcelona og spænska landsliðinu. „Það er mjög ánægjulegt að sjá hann æfa á ný því hann er lykilmaður í okkar liði," sagði Iniesta. Barcelona missti af bæði spænska meistaratitlinum og meistaradeildinni á síðustu leiktíð og saknaði augljóslega Villa sem hefur skorað ófá mikilvæg mörk fyrir liðið undanfarin ár. „Við vonum að hann geti farið að spila sem fyrst og að gera það sem hann er bestur í sem er að skora mörk," bætti Iniesta við. David Villa sem er orðinn 30 ára gamall, fótbrotnaði í Heimsmeistarakeppni félagsliða í desember síðastliðnum. Hann náði ekki að verða góður af meiðslunum fyrir Evrópukeppnina í sumar.
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira