Þórir óánægður með gengi norska liðsins á ÓL Stefán Hirst Friðriksson skrifar 6. ágúst 2012 13:45 Þórir stýrði norska liðinu til heimsmeistaratitils árið 2009.
Norska kvennalandsliðið sem leikur undir stjórn Íslendingsins, Þóris Hergeirssonar, olli töluverðum vonbrigðum í riðlakeppni Ólympíuleikanna í handknattleik. Liðið endaði í fjórða sæti riðilsins en komst þó áfram í 8-liða úrslitin þar sem þær mæta toppliði A-riðils, Brasilíu. Einokun norska liðsins hefur verið mikil á undanförnum árum en liðið er ríkjandi Ólympíu-, heims- og Evrópumeistari og hefur því slakt gengi liðsins komið töluvert á óvart. Liðið tapaði í gærkvöldi fyrir Spánverjum og var Þórir vægast sagt ósáttur með frammistöðu liðsins í leiknum í gær sem og í riðlakeppninni. „Ég er ekki sáttur við frammistöðuna gegn Spánverjum og hreint út sagt ósáttur með okkar frammistöðu í riðlinum. Við vinnum leiki með því að leggja okkur fram en það virðist vanta hjá okkur og vantaði svo sannarlega gegn Spánverjum. Þetta var skref aftur á bak í okkar leik," sagði Þórir í samtali við VG eftir leik. „Ég þarf að halda fund með leikmönnum liðsins og komast að því hvers vegna baráttan og leikgleðin er ekki til staðar hjá liðinu. Þetta er mjög ólíkt okkur en við virðumst ekki vera að gera þetta af fullum krafti," bætti Þórir við. „Okkur tókst þó að ná inn í 8-liða úrslitin þrátt fyrir slaka frammistöðu en þetta er allt önnur keppni sem við erum að fara inn í núna. Það er allt opið ennþá en við þurfum að fara að ná einhverjum takti í okkar leik," sagði Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins að lokum. Átta liða úrslitin hefjast á morgun en þar mætast: Brasilía - Noregur Spánn - Króatía Frakkland - Svartfjallaland Rússland - Suður Kórea
Handbolti Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti „Ég elska peninga“ Sport Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Fleiri fréttir Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Sjá meira