Þjálfari Ungverja ætlar að finna svar gegn íslensku vörninni Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 6. ágúst 2012 11:11 Lajos Mocsai, landsliðsþjálfari Ungverja. Nordic Photos / AFP
Lajos Mocsai, landsliðsþjálfari Ungverjalands, ætlar að nýta tímann fram að leik sinna manna gegn Íslandi í fjórðungsúrslitunum vel. Ungverjar unnu í morgun þriggja marka sigur á Serbíu, 26-23, og tryggðu sér þar með fjórða sæti B-riðils. Þar sem Ísland er búið að tryggja sér sigur í A-riðli er ljóst að þessi tvö lið munu mætast í 8-liða úrslitunum á miðvikudaginn. „Ég vil byrja á að óska Íslendingum til hamingju með frábært handboltalandslið. Liðið er framúrskarandi gott," sagði hann við blaðamann Vísis eftir leikinn í morgun. „Allir leikmenn Íslands eru mjög öflugir - miklir kraftakallar en líka afar vel skipulagðir." Mocsai náði að stilla saman varnarleik Ungverja í seinni hálfleik en það lagði grunninn að sigrinum, ásamt markvörslu Nandor Fazekas og frammistöðu Tamas Mocsai í sókninni en sá skoraði níu mörk í dag. Þess má geta að þeir Lajos og Tamas eru feðgar. „Ég vona að við höfum í dag náð að brjótast í gegnum ákveðinn múr," sagði hann Ungverjar hafa tapað þremur leikjum á mótinu - gegn Danmörku, Spáni og Króatíu. „Við spiluðum vel í dag og ég vona að við getum nýtt okkur þennan meðbyr. Íslendingar hafa spilað mjög góðan varnarleik á mótinu en öll lið eru með sínar aðferðir til að hafa betur gegn andstæðingnum," sagði hann. „Ég hef nú næstu tvo daga til að undirbúa mitt lið fyrir leikinn og verður það mitt að finna svar gegn íslensku vörninni."
Tengdar fréttir Ungverjar tryggðu sér leik gegn Íslandi í fjórðungsúrslitum Ungverjaland verður andstæðingur Íslands í 8-liða úrslitum handboltakeppninnar á Ólympíuleikunum í London. Ungverjar tryggðu sig áfram sem síðasta liðið úr B-riðli með góðum sigri á Serbum nú í morgunsárið. 6. ágúst 2012 10:05 Mocsai: Verður annar eins slagur gegn Íslandi Tamas Mocsai átti stórleik þegar að Ungverjaland hafði betur gegn Serbíu í hreinum úrslitaleik um hvort liðið myndi mæta Íslandi í fjórðungsúrslitum keppninnar. 6. ágúst 2012 10:46 Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport „Ég elska peninga“ Sport Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Fleiri fréttir Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Sjá meira
Ungverjar tryggðu sér leik gegn Íslandi í fjórðungsúrslitum Ungverjaland verður andstæðingur Íslands í 8-liða úrslitum handboltakeppninnar á Ólympíuleikunum í London. Ungverjar tryggðu sig áfram sem síðasta liðið úr B-riðli með góðum sigri á Serbum nú í morgunsárið. 6. ágúst 2012 10:05
Mocsai: Verður annar eins slagur gegn Íslandi Tamas Mocsai átti stórleik þegar að Ungverjaland hafði betur gegn Serbíu í hreinum úrslitaleik um hvort liðið myndi mæta Íslandi í fjórðungsúrslitum keppninnar. 6. ágúst 2012 10:46