Spænsku stelpurnar náðu bronsinu eftir tvíframlengdan leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. ágúst 2012 18:18 Mynd/Nordic Photos/Getty
Spænska kvennalandsliðið í handbolta tryggði sér bronsverðlaun á Ólympíuleiknum í London í kvöld eftir dramatískan 31-29 sigur á Suður-Kóreu í tvíframlengdum leik. Þetta eru fyrstu verðlaun spænska kvennalandsliðsins í sögu handboltakeppni Ólympíuleikanna. Þjóðirnar voru saman í riðli á leikunum og mættust í fyrsta leik mótsins en þá vann Suður-Kórea fjögurra marka sigur, 31-27. Spánn tapaði með einu marki á móti Svartfjallalandi í undanúrslitunum en suður-kóreska liðið tapaði þá fyrir Noregi. Nely Carla Alberto og Begona Fernández voru markahæstar hjá Spáni með fimm mörk hvor en Silvia Navarro varði 15 skot. Gwon Han-Na skoraði mest fyrir Suður-Kóreu eða sex mörk. Suður-Kórea komst mest fjórum mörkum yfir í fyrri hálfleik, 9-5 og 10-6, en spænska liðið var búið að jafna í 13-13 fyrir hálfleik. Spænska liðið náði síðan mest fjögurra marka forskoti í seinni hálfleik, 15-19 og 16-20 en suður-kóreska liðið náði að jafna í 24-24 og tryggja sér framlengingu. Spænska liðið var áfram með frumkvæðið í fyrri framlengingunni en kóresku stelpurnar jöfnuðu 29 sekúndum fyrir lok hennar og því beið liðanna önnur framlenging. Spænska liðið var áfram á undan að skora í seinni framlengingunni og tryggði sér síðan bronsið með því að skora tvö síðustu mörkin og vinna leikinn 31-29. Mihaela Ciobanu, varamarkvörður spænska liðsins, varði fjögur víti í leiknum þar af þrjú þeirra í framlengingunum tveimur. Noregur og Svartfjallaland spila um gullið klukkan 19.30 en þar getur íslenski þjálfarinn Þórir Hergeirsson gert norska kvennalandsliðið að Ólympíumeisturum.
Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára strákur drukknaði Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Goðsögn fallin frá Enski boltinn Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum Enski boltinn Fleiri fréttir Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sjá meira