Danir tapa stórfé á örum frumsýningum kvikmynda 18. september 2012 06:28 Peter Aalbæk Jensen forstjóri Zentropa.
Danskir kvikmyndagerðarmenn tapa stórfé á því hve ört danskar kvikmyndir hafa verið frumsýndar í haust. Það er Jyllands Posten sem fjallar um málið en þar kemur fram að á innan við sex vikum í september og október munu níu innlendar leiknar kvikmyndir í fullri lengd verða frumsýndar í Danmörku. Þetta leiðir til þess að verulega dregur úr aðsókn á þær hverja fyrir sig því takmarkað er hvað almenningur hefur mikinn tíma til að horfa á allar þessar myndir. Jyllands Posten segir að með öllum þessum frumsýningum sé verið að eyða fé skattborgara í vitleysu en þessar myndir voru styrktar af hinu opinbera með samtals 56 milljónum danskra kr. eða vel yfir milljarði kr. Rætt er við Klaus Hansen formann félags kvikmyndaframleiðenda í Danmörku og Peter Aalbæk Jensen forstjóra Zentropa sem eru sammála um að þessi fjöldi frumsýninga á jafnstuttum tíma sé fáránlegur og til þess eins að kvikmyndagerðarmenn tapi fé að óþörfu. Danska kvikmyndastofnunin hvetur framleiðendur til að dreifa frumsýningum á myndum sínum betur yfir árið.
Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Flugmenn og Icelandair funda á morgun Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira