Lakers búið að tapa fjórum fyrstu leikjunum með Nash Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. október 2012 16:00 Steve Nash. Mynd/Nordic Photos/Getty
Steve Nash byrjar ekki alltof vel með Los Angeles Lakers liðinu því stórstjörnuliðið hefur tapað fyrstu fjórum leikjum sínum á undirbúningstímabilinu. Lakers steinlá 80-114 á móti Utah Jazz í nótt. Kobe Bryant var stigahæstur hjá Lakers með 31 stig á 29 mínútum en hvorki Pau Gasol eða Dwight Howard voru með liðinu í leiknum. Dwight Howard á enn eftir að spila sinn fyrsta leik með Lakers. Steve Nash spilaði bara í 12 mínútur í nótt og var með 2 stig, 1 stoðsendingu og 4 tapaða bolta. Nash sem er orðinn 38 ára gamall er með 5,5 stig og 3,3 stoðsendingar á 18,8 mínútum í leik í þessum fjórum leikjum. Lakers hafði áður tapað með 27 stigum yfir Golden State Warriors (83-110), með 18 stigum á móti Portland Trailblazers (75-93) og með 13 stigum á móti Utah Jazz (86-99). Lakers á eftir fjóra leiki á undirbúningstímabilinu og næstu tveir leikir og þrír af næstu fjórum leikjum verða á móti Sacramento Kings. Mike Brown, þjálfari liðsins, segist ekki hafa miklar áhyggjur af því þótt að Lakers tapi öllum leikjum sínum á undirbúningstímabilinu og raunverulegur styrkur liðsins kemur ekki í ljós fyrr en Dwight Howard byrjar að spila.
NBA Mest lesið Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum Íslenski boltinn Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Enski boltinn Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira