Körfubolti

„Margt sem við þurfum að laga“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Finnur Freyr fer yfir málin með leikmönnum sínum. 
Finnur Freyr fer yfir málin með leikmönnum sínum.  Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, viðurkenndi það fúslega að lið hans hafi ekki sýnt löðrandi gæði þegar það bar sigurorð af Grindavík í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld. Mesta gleðiefnið sé að það hafa samt sem áður skilaði sigri í höfn. 

„Það var klárlega haustbragur á þessum leik og frammistaðan langt frá okkar besta. Sem betur fer skilaði þó spilmennskan þó tveimur stigum og það gleður mig eiginlega bara mest,“ sagði Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, eftir leik.

„Við náðum að herða varnarleikinn og héldum þeim í kringum 20 stig í seinni hálfleik sem er vissulega jákvætt. Atli Freyr heldur svo áfram að skila góðu framlagi og sýna þroskaða frammistöðu. Það hálffyllir glasið að sjálfsögðu,“ sagði Finnur Freyr um ungstirnið sem hann er með í höndunum.

„Ég skal alveg viðurkenna það að það kemur mér á óvart að Atli Freyr sé að skila tvöfaldri tvennu annan leikinn í röð þegar litið er til þess að hann er 16 ára gamall. Atli á eftir að læra margt en hann er viljugur að soga að sér körfuboltavitneskju og það hefur skilað honum hárri körfuboltagreind,“ sagði Finnur um leikmann sinn.

„Fram undan er undirbúningur fyrir bikarleik á sunnudaginn kemur. Við þurfum að æfa vel fram að þeim leik og fara yfir það sem betur mátti fara. 

Svo verður að hafa í huga að Kristófer er að koma úr meiðslum og það sást bersýnilega í þessum leik að hann er að koma sér í gang eftir meiðsli. Formið hjá honum og öðrum leikmönnum liðsins mun batna með hverri æfingavikunni sem líður,,“ sagði hann um framhaldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×