Lopapeysuævintýri í uppsiglingu í Færeyjum 19. nóvember 2012 06:46 Graböl gaf nýlega Camillu Bowles eiginkonu Karls Bretaprins færeyska lopapeysu.
Lopapeysuævintýri er í uppsiglingu í Færeyjum í tengslum við frumsýningu á dönsku glæpaþáttunum Forbyrdelssen eða Glæpurinn í BBC. Í þessum þáttum er höfuðpersónan Sara Lund hin einmanna lögreglukona, sem danska leikkonan Sofie Graböl leikur, oftast klædd í færeyska lopapeysu með klassískum munstrum. Breska blaðið Daily Mail segir að búast megi við stóraukinni eftirspurn eftir þessum lopapeysum á Bretlandseyjum eftir að sýningar á þáttunum eru hafnar þar í landi. Það er prjónastofan Guðrún og Guðrún í Þórshöfn í Færeyjum sem prjónar þessar lopapeysur fyrir framleiðendur dönsku sjónvarpsþáttanna. Þar að auki eru peysurnar til sölu í mörgum Evrópulöndum en þær kosta að meðaltali um 300 evrur eða ríflega 50.000 krónur stykkið. Daily Mail segir að lopapeysurnar séu þegar orðnar vinsælar meðal breskra aðalsmanna í framhaldi af því að Graböl gaf nýlega Camillu Bowles eiginkonu Karls Bretaprins eina slíka.
Mest lesið Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Viðskipti innlent Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira