Strákarnir hans Dags björguðu andlitinu í seinni hálfleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. desember 2012 20:55 Dagur Sigurðsson. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Lærisveinar Dags Sigurðssonar í Füchse Berlin voru komnir í slæm mál í leik á móti Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag en tókst að tryggja sér 28-23 sigur með frábærum seinni hálfleik. Gummersbach er í hópi neðstu liða deildarinnar og var aðeins búið að vinna fjóra af fyrstu fimmtán leikjum tímabilsins. Strákarnir hans Dags björguðu hreinlega andlitinu í seinni hálfleik en Refirnir unnu síðustu 25 mínútur leiksins 15-4 þar sem Ivan Nincevic fór á kostum. Nincevic var markahæstur hjá Füchse með 10 mörk en Johannes Sellin skoraði 7 mörk. Gummersbach var 16-12 yfir í hálfleik en Füchse skoraði tvö síðustu mörk hálfleiksins eftir leikhlé hjá Degi. Füchse Berlin var síðan 13-19 undir í leiknum þegar fimm mínútur voru liðnar af seinni hálfleik en skoraði þá sjö mörk í röð og komst yfir í 20-19. Füchse Berlin var síðan sterkara á lokasprettinum en Gummersbach-liðið var þarna að tapa sínum sjöunda leik í röð í þýsku deildinni. Füchse Berlin er í 4. sæti deildarinnar en liðið var að vinna sinn þriðja leik í röð eftir að liðið tapaði tveimur leikjum í röð um miðjan nóvembermánuð.Ólafur Gústafsson gat ekki spilað vegna ökklameiðsla þegar SG Flensburg-Handewitt vann 29-25 heimasigur á Frisch Auf Göppingen. Holger Glandorf skroaði 10 mörk fyrir Flensburg.Björgvin Páll Gústavsson kom ekkert við sögu þegar SC Magdeburg vann öruggan 26-18 heimasigur á GWD Minden en hollenski markvörðurinn Gerrie Eijlers var besti maður leiksins. Vignir Svavarsson skoraði þrjú mörk fyrir Minden.
Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Fleiri fréttir Kolstad tapaði bikarúrslitaleiknum í vítakeppni Segir starfið í húfi hjá Alfreð Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Íslendingarnir í miklum ham fyrir EM Handarbrotinn og missir af úrslitaleiknum Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Elín Klara atkvæðamikil og sigursæl í jólaleiknum Birgir byrjaði rólega eftir jólafrí en fagnaði sigri Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Sjá meira