Guðmundur um meiðsli Alexanders: Einföld aðgerð á öxlinni myndi bjarga ÓL Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2012 08:30 Alexander Petersson missir af forkeppni Ólympíuleikanna í Króatíu. Fréttablaðið/Vilhelm
Alexander Petersson gefur ekki kost á sér í forkeppni Ólympíuleikanna vegna meiðsla á öxl en hann hefur engu að síður verið að spila með Füchse Berlin. Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, var spurður út í mál Alexanders á blaðamannafundi í gær. Það má segja að þrír aðilar séu að togast þarna á. Alexander að klára sitt síðasta tímabil með Füchse Berlin, hann fer til Rhein Neckar Löwen í sumar og þá eru Ólympíuleikarnir fram undan takist íslenska landsliðinu að komast til London. Það besta fyrir íslenska landsliðið væri að Alexander færi strax í aðgerð en málið er ekki einfalt. „Það hefur engin ákvörðun verið tekin um aðgerð enda ráðum við því ekki. Hann verður að ákveða það sjálfur hvort hann vill slíka aðgerð eða ekki. Það er ekkert í kortunum eins og staðan er í dag að hann sé á leiðinni í aðgerð," sagði Guðmundur í gær. „Það sýnist sitt hverjum hvað á að gera og hvenær eigi að gera það. Það hafa allir aðilar sem að því máli koma á einn eða annan hátt sína skoðun á því. Ég efast um að Berlín vilji hleypa honum í aðgerð núna og svo framvegis. Það togast ýmislegt á í þessu máli. Við hlustum bara á þá lækna sem hafa skoðað myndir af þessu og þeir meta þetta á sinn hátt á Íslandi en síðan eru aðrir læknar í Þýskalandi sem hafa aðra skoðun. Ég veit ekki einu sinni hvernig þetta endar." „Ef okkur tekst að komast inn á Ólympíuleikana þá er hann að sjálfsögðu gríðarlega mikilvægur leikmaður í okkar liði. Það er enginn vafi á því að landsliðið vill njóta krafta hans," sagði Guðmundur en til þess að hann nái Ólympíuleikunum þá þarf hann að fara tímanlega í aðgerð. „Eftir því sem læknar landsliðsins segja þá telja þeir að það sé hægt að framkvæma á honum tiltölulega einfalda aðgerð sem kemur honum í lag á sex til átta vikum. Hún á að koma í veg fyrir að þetta fari enn verr. Það er möguleiki á því að hann nái Ólympíuleikunum ef menn fara nógu snemma í það mál," sagði Guðmundur.
Handbolti Mest lesið Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Fótbolti Fleiri fréttir Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Sjá meira