Segir engan vafa leika á sök ákærða 25. apríl 2012 01:30 Líður að dómi Maður sem ákærður er fyrir að myrða hjón í fyrra segist saklaus, en ákæruvaldið segir engan vafa leika á sekt hans. Nordicphotos/AFP
Enginn vafi er á að maður sem er ákærður fyrir að hafa myrt miðaldra hjón í nágrenni Óðinsvéa fyrir rúmu ári sé sekur. Þetta segir saksóknarinn í málinu, sem hefur vakið mikla athygli í Danmörku. Hjónin voru skotin til bana á kvöldgöngu í Árþúsundaskógi um miðjan apríl í fyrra. Talið er að þau hafi komið að ákærða, 38 ára karlmanni, þar sem hann var að skjóta af vélbyssu. Hann hafi skotið þau í stundaræði og reynt að hylja spor sín í kjölfarið. Leitin að morðingjanum var afar yfirgripsmikil, en mánuði síðar var umræddur maður handtekinn og hefur síðan setið í varðhaldi. Margt þykir benda til sektar, þar á meðal lífsýni á skothylkjum. Verjandi mannsins segir það ekki taka af tvímæli um að umbjóðandi sinn hafi framið ódæðið, því ákærði hafi um árabil selt og meðhöndlað vopn og skotfæri í undirheimum Óðinsvéa. Verjandinn byggir vörn sína á því að vekja upp vafa á sekt ákærða og vildi meðal annars reyna að varpa sök á annan mann í málinu. Hinn ákærði bar vitni í fyrradag og neitaði sök. Hann sagðist ekki hafa verið í Þúsaldarskógi þennan dag, þó hann muni ekki hvað hann aðhafðist um daginn. Í dönskum fjölmiðlum segir að dómur verði kveðinn upp næstkomandi föstudag. - þj
Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Sjá meira