Hélt strax á fund við Merkel 16. maí 2012 02:00 Sarkozy kveður, Hollande tekur við Nicolas Sarkozy og François Hollande tókust í hendur fyrir utan Elysee-höllina í París.Fréttablaðið/AP
Aðeins fáeinum klukkustundum eftir að François Hollande tók við forsetaembættinu í Frakklandi hélt hann til Þýskalands á fund við Angelu Merkel kanslara. Hollande vill stefnubreytingu í viðbrögðum við skuldakreppu evruríkjanna. Dregið verði úr einstrengingslegri áherslu á sparnað í ríkisfjármálum en þess í stað lögð áhersla á að styrkja velferðarkerfið og nota ríkisfé til að koma hagvexti af stað. „Ég legg til að gerður verði nýr samningur þar sem nauðsynleg skuldalækkun verði tengd óhjákvæmilegri örvun efnahagsins," sagði Hollande. Hugmyndir hans ganga þvert á stefnu Angelu Merkel og Nicolas Sarkozy, forvera Hollandes á forsetastól í Frakklandi. Hollande á því töluvert verk fyrir höndum við að sannfæra Merkel og suma aðra leiðtoga evrusvæðisins. Áður en Hollande hélt af stað til Þýskalands gaf hann sér þó tíma til að tilkynna að Jean-Marc Ayrault verði forsætisráðherra Frakklands. Ayrault er borgarstjóri í Nantes og þingflokksformaður Sósíalistaflokksins. Ayrault þarf nú að tilnefna ráðherra í ríkisstjórn sína og bera síðan ráðherralistann undir þingið, sem þarf að veita samþykki sitt.- gb
Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira