Til Heiðu Edda Jónasdóttir skrifar 12. júní 2012 06:00 Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til að standa vörð um persónulega hagsmuni segir þú í grein þinni „Til kjósenda" í Fréttablaðinu 17. maí. En eruð þið ekki að berjast fyrir persónulegum hagsmunum hótelbyggjanda í Kvosinni? Kjósendur hafa verið að skrifa vegna baráttunnar um að ekki rísi risahótel við Austurvöll, Ingólfstorg og Fógetagarðinn og að tónlistarsalurinn Nasa verði ekki rifinn. Engin svör hafa fengist önnur en þau að málið sé í ákveðnum farvegi. Þó hef ég heyrt haft eftir fulltrúum ykkar að húsin við Vallarstræti munu ekki halda sinni upprunalegu mynd og að þarna muni rísa hótel. Það er ánægjulegt að loksins skulir þú, Heiða Kristín, fulltrúi Besta flokksins stinga niður penna og lýsa vilja ykkar í þessu máli. Þú svarar í grein þinni Davíð Roach Gunnarssyni sem birtist í Fréttablaðinu 16. maí að enda þótt skemmtistaðurinn Tunglið, sem áður stóð í Lækjargötunni sé horfinn, lifi tónlistin blómlegu lífi. Merkilegt! Af hverju heldur þú að svo sé? Það er nefnilega samtakamáttur almennings sem skiptir miklu máli. Það má fullyrða að tónlistarhúsið Harpa, helsta musteri tónlistar á Íslandi í dag, eigi tilvist sína að þakka baráttu áhugamanna um tónlist. Sú barátta stóð í áratugi. Ekki tókst áhugafólki um verndun menningarverðmæta í miðborginni að bjarga Fjalakettinum á sínum tíma. Vonandi tekst nú að bjarga NASA. Við erum stolt af elsta húsi Reykjavíkur, Aðalstræti 10, byggt 1762. Sama má segja um Bernhöftstorfuna sem til stóð að rífa. Borgir í nágrannalöndum okkar leggja sig fram við að hlúa að miðbæjarkjarna m.a. með viðhaldi og verndun gamalla bygginga. Ferðamenn jafnt sem Íslendingar sækja miðbæinn til að njóta þess sem hann hefur upp á að bjóða og efast ég um að byggingar eins og Miðbæjarmarkaðurinn, TM-húsið og MBL-húsið gamla, sem öll standa við Aðalstræti, sé það sem fólk sækir í. Þarf virkilega að koma enn ein stórbyggingin í viðbót á umrætt svæði? Það ætti frekar að vera baráttumál ykkar að rífa stóru steinbyggingarnar við Aðalstræti sem ég taldi upp, frekar en að bæta þeim við það sem fyrir er. Mjög margir erlendir gestir sem koma hingað, dvelja eingöngu í Reykjavík og hvað gera þeir í heimsókn sinni? Þeir ganga mikið um í miðbæ Reykjavíkur til að heimsækja söfnin, veitingastaði, hafnarsvæðið og skoða byggingar eins og Dómkirkjuna, Alþingishúsið, Aðalstræti 10, Stjórnarráðið, Þjóðmenningarhúsið, Hegningarhúsið við Skólavörðustíg, Hallgrímskirkju og Menntaskólann í Reykjavík. Þetta eru hús sem hafa sögulegt gildi sem ég legg áherslu á að sýna gestum mínum. Það er einkenni mjög margra borga í nágrannalöndum að þar er gamall miðbæjarkjarni og falleg torg, ekki eru stórar steinbyggingar í Gamla Stan í Stokkhólmi eða á Grábræðratorgi í Kaupmannahöfn. Aðalmálið er að fegra Ingólfstorg og með því gerum við borgina þannig að hún hafi aðlaðandi miðbæjarkjarna sem allir Íslendingar geta notið og ég get verið stolt af þegar ég kynni hana fyrir erlendum gestum okkar. Það er rétt sem þú segir að hér er um einkalóðir að ræða og allir átta sig á því. En lóðirnar eru ekki við Suðurlandsbraut eða í Þverholti, heldur í hjarta borgarinnar, við þrjú almenningstorg og því hlýtur almenningur að koma að þessu máli og að geta óskað eftir því að borgarfulltrúar verji hagsmuni okkar borgarbúa. Hér er verið að breyta umhverfi í dýrmætu almenningsrými og menningarleg verðmæti eru í húfi. Það stendur m.ö.o. til að breyta lífsgæðum borgarbúa og annarra Íslendinga. Við viljum ekki fleiri slys í skipulagsmálum. Hvers vegna þarf svona mörg hótel á svæði sem afmarkast af Aðalstræti, Austurstræti, Hafnarstræti, Bankastræti og neðri hluta Laugavegar? Ég get ekki betur séð en að Hótel eins og Grand Hótel, Hótel Natura/Icelandair, Cabin hótel, Hótel Nordica, Radisson Saga, Hótel Reykjavík, Foss hótel Barón og Hótel Park-inn lifi góðu lífi þrátt fyrir staðsetninguna. Það eru aðrar lausnir í þessu máli og hér er mín lausn. Best væri að Besti flokkurinn beitti sér fyrir því að eigandi þessara lóða fengi annan stað til að byggja hótelið sitt á, það færu fram svokölluð „makaskipti". Hann fengi lóð þar sem aðkoma bíla væri þægilegri því Besti flokkurinn hefur lagt til að draga skuli úr umferð bíla í miðborginni. Það væri einnig frábært ef Besti flokkurinn beitti sér fyrir því að varðveita menningarverðmæti á umræddum lóðum. Það væri frábært ef Besti flokkurinn beitti sér fyrir því að skuggavarp verði ekki meira (helst minna) á almenningssvæðum sem þessum. Svo væri það best af öllu ef Besti flokkurinn beitti sér fyrir hagsmunum almennings umfram einkaaðila. Borgarfulltrúar Besta flokksins ættu að gera sér grein fyrir því að þeir eru ekki afgreiðslustofnun fyrir verktaka eða peningagræðgi lóðareiganda heldur voruð þið kosin vegna þreytu almennings á ruglinu í borginni, þ.m.t. byggingarrugli. Hverra hagsmuna er verið að gæta ef Besti flokkurinn stuðlar að hótelbyggingu á torginu? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðanir Tengdar fréttir Til borgarfulltrúa Besta flokksins Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Reykjavík að skemmtilegri borg. Í byrjun þessa árs kom fram að til stæði að rífa skemmtistaðinn Nasa og byggja enn eitt risahótelið við einn ástsælasta samkomustað Reykvíkinga, Austurvöll. Þessi áætlun kom fyrst fram fyrir þremur árum síðan en komið var í veg fyrir það þá vegna mikilla mótmæla, m.a. frá tónlistarmönnum. Þegar þessi áætlun var sett fram aftur í byrjun árs vakti það hjá mér ugg í brjósti, en síðan róaðist ég aðeins þegar ég mundi hverjir sætu í borgarstjórn. 16. maí 2012 06:00 Til kjósenda Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um persónulega hagsmuni sína eða félaga sinna. 17. maí 2012 06:00 Mest lesið Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Til borgarfulltrúa Besta flokksins Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Reykjavík að skemmtilegri borg. Í byrjun þessa árs kom fram að til stæði að rífa skemmtistaðinn Nasa og byggja enn eitt risahótelið við einn ástsælasta samkomustað Reykvíkinga, Austurvöll. Þessi áætlun kom fyrst fram fyrir þremur árum síðan en komið var í veg fyrir það þá vegna mikilla mótmæla, m.a. frá tónlistarmönnum. Þegar þessi áætlun var sett fram aftur í byrjun árs vakti það hjá mér ugg í brjósti, en síðan róaðist ég aðeins þegar ég mundi hverjir sætu í borgarstjórn. 16. maí 2012 06:00
Til kjósenda Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um persónulega hagsmuni sína eða félaga sinna. 17. maí 2012 06:00
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar