Níu látnir eftir snjóflóð í Ölpunum 13. júlí 2012 00:30 Komið með fórnarlömb Leitarmenn fundu níu látna í fjallinu í gær, en einnig voru ellefu fluttir á sjúkrahús. fréttablaðið/ap
Níu eru látnir eftir að snjóflóð féll í Mont Blanc í frönsku Ölpunum í gær. Ellefu slösuðust og fjögurra var enn saknað í gærkvöldi. Flóðið varð snemma í gærmorgun, þegar hópur fjallgöngumanna var á ferð þar. Talið er að fjallgöngumaður hafi valdið því að flóðið fór af stað, en nokkrir náðu að komast undan því. Mikið hafði snjóað við vinsælar gönguleiðir í kringum Mont Blanc í illviðri fyrr í sumar. Yfirvöld á staðnum höfðu varað göngumenn við því að óvenjulega mikið hefði snjóað þar í vor. Þrír Bretar, þrír Þjóðverjar, tveir Spánverjar og einn Svisslendingur létust í fjallinu, að sögn yfirvalda í fjallabænum Chamonix. Fólkið var allt vant fjallgöngum. Innanríkisráðherra Frakklands, Manuel Valls, flaug yfir svæðið seint í gær. Hann sagði snjóþungann hafa gert leitarmönnum erfitt fyrir, en leit að hinum týndu var hætt í gærkvöldi vegna veðurs. Leitinni verður haldið áfram í dag. - þeb
Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Fleiri fréttir Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Sjá meira