Eldri borgarar drykkfelldari en áður 13. júlí 2012 00:00 Léttvín Léttvínsdrykkja Norðmanna hefur aukist verulega.
Norskar konur og karlar eldri en 60 ára drekka nær tvöfalt meira en fyrir tíu árum. Þetta kemur fram í skýrslu vísindamanna við Tækni- og náttúruvísindaháskóla Noregs sem norska ríkisútvarpið vitnar í. Skýrslan byggir á niðurstöðum heilbrigðiskönnunar í Norður-Þrændalögum. Morten Støver, einn vísindamannanna við háskólann, segir þessa miklu aukningu vekja undrun. Áður hafi komið í ljós að áfengisdrykkja hafi almennt aukist. Þessi könnun hafi hins vegar leitt í ljós að mesta aukningin hafi hlutfallslega verið hjá þeim sem eru eldri en 60 ára. Samkvæmt könnuninni drekka Norðmenn mest af léttvíni. Á fréttavef Aftenposten er greint frá því að léttvínsdrykkja hafi aukist verulega frá 1997 til 2008. Að sögn Støver kann aukið aðgengi að léttvíni, lítil verðhækkun og aukinn kaupmáttur að eiga þátt í aukinni drykkju. Hann telur einnig að fólk kunni að fylla tómarúmið að loknum starfsferli með víndrykkju. Vísindamaðurinn hefur áhyggjur af þessari þróun og telur að eldri borgurum með áfengisvanda eigi eftir að fjölga þegar næsta kynslóð verður eldri.- ibs
Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Sjá meira