Tvö tímamótamörk hjá Margréti Láru í einu sparki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. október 2012 08:00 Margrét Lára Viðarsdóttir er með 69 mörk í 86 landsleikjum, þar af 50 í keppnisleikjum Mynd/Daníel
Margrét Lára Viðarsdóttir valdi réttan tíma fyrir tímamótamark með íslenska landsliðinu þegar hún kom íslenska liðinu í 1-0 í 3-2 sigri á Úkraínu í seinni umspilsleiknum á Laugardalsvellinum í fyrrakvöld. Margrét Lára náði með því tveimur tímamótamörkum með einu sparki því þetta var 50. mark hennar í keppnisleik með landsliðinu og 30. markið hennar á Laugardalsvellinum. Margrét Lára lék sinn fyrsta alvörulandsleik á móti Ungverjum í júní 2003 sem jafnframt var hennar fyrsti landsleikur. Hún skoraði fjórum mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður og hefur síðan skorað 50 mörk í 52 landsleikjum í undankeppni EM (31 mark í 32 leikjum), undankeppni HM (19 mörk í 17 leikjum) eða úrslitakeppni EM. Margrét Lára hefur jafnframt skorað yfir tíu mörk í síðustu þremur undankeppnum íslenska landsliðsins, 12 mörk í undankeppni EM 2009, 10 mörk í undankeppni HM 2011 og loks 11 mörk í undankeppni EM 2013. Aðeins Þjóðverjinn Célia Okoyino da Mbabi (17 mörk) skoraði fleiri mörk í þessari undankeppni. Margrét Lára hefur einnig verið afar dugleg að finna netið á þjóðarleikvanginum í Laugardalnum en markið í fyrrakvöld var 30. markið sem hún skorar í 23 leikjum sínum á Laugardalsvellinum. Allir þeir leikir hafa verið í undankeppni stórmóts og hún hefur skorað í Dalnum á öllum árum síðasta áratuginn nema 2004 og 2010.Mörk Margrétar Láru í leikjum í HM eða EM: Undank. EM 2005 - 10 leikir/8 mörk Undank. HM 2007 - 8/9 Undank. EM 2009 - 10/12 Úrslitak. EM 2009 - 3/0 Undank. HM 2011 - 9/10 Undank. EM 2013 - 12/11
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Sjá meira