Enski boltinn

„Þetta snýst ekki um mig“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michael Carrick á hliðarlínunni í dag. Manchester United tapaði illa á móti Bournemouth á heimavelli og margir spá því að goðsögn félagsins þurfi að taka pokann sinn á morgun.
Michael Carrick á hliðarlínunni í dag. Manchester United tapaði illa á móti Bournemouth á heimavelli og margir spá því að goðsögn félagsins þurfi að taka pokann sinn á morgun. Getty/Dan Istitene

Michael Carrick horfði upp á sína menn í Manchester United fá annan skell í sömu vikunni þegar liðið tapaði 3-0 á heimavelli á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag.

„Þetta var erfiður dagur. Strákarnir fóru inn í leikinn með bestu fyrirætlanir. Þeim fannst þetta erfitt í dag – smá spenna, kvíði og svolítið óöryggi. Það gerði þetta erfitt,“ sagði Michael Carrick, knattspyrnustjóri Manchester United, í samtali við breska ríkisútvarpið.

„Mörkin tvö fyrir hálfleik settu okkur í erfiða stöðu. Næsta mark skiptir þá miklu máli og ég fann að stuðningsmennirnir vildu styðja við bakið á okkur, jafnvel í hálfleik fann ég hávaðann og viljann til að ýta okkur áfram. Ég talaði um það í hálfleik,“ sagði Carrick.

Þá hefði öll stemningin breyst

„Ef við hefðum skorað á þeim tímapunkti hefði öll stemningin breyst, en okkur tókst það ekki þá. Þriðja markið gerði í raun út um leikinn. Blendnar tilfinningar – maður fann að strákarnir reyndu að gera rétta hluti en maður fann líka tilfinningarnar á vellinum og þetta voru mjög blendnar tilfinningar fyrir mig að standa á hliðarlínunni,“ sagði Carrick.

Carrick tók stóra ákvörðun með því að láta fyrirliðann Bruno Fernandes dúsa á bekknum allan leikinn.

Bruno er heill

„Hann er heill og til taks en við ákváðum að velja liðið sem við gerðum í dag. Því miður fyrir alla náðum við ekki réttum úrslitum,“ sagði Carrick.

„Við viljum sækja fram og skapa meira, við hefðum getað gert ákveðna hluti en það var í raun ekki nóg og það er alveg ljóst,“ sagði Carrick. Honum þykir vænt um félagið og talaði um tilfinningar sínar.

Hryggir mig að hafa þessa tilfinningu

„Staðan sem við erum í sem knattspyrnufélag er það sem mér er annt um. Þetta snýst ekki um mig. Þetta snýst um allt félagið og að vera í betri stöðu en við erum í núna,“ sagði Carrick.

„Það hryggir mig að hafa þessa tilfinningu þegar ég stend þarna. Mér finnst ég svo tengdur þessu og það fylgir þessu gríðarleg ábyrgð. Þannig líður mér og ég viðurkenni minn hlut í þessu líka. Að finna þetta frá stuðningsmönnunum var sérstakt á vissan hátt – það er gott að finna tenginguna og þakklætið frá þeim,“ sagði Carrick.

Engin tár, bara þakklæti

Var hann að kveðja stuðningsmennina í leikslok? „Nei, ekki af minni hálfu. Það voru engin tár, bara þakklæti til stuðningsmannanna og þess sem þeir hafa sýnt mér,“ sagði Carrick.

Býst hann við viðræðum um framtíðina? „Sjáum hvað gerist. Ég býst ekki við neinu. Ég er bara að melta daginn í dag – við vissum að þetta væri mikilvægur dagur til að reyna að koma okkur áfram og það tókst ekki. Fyrir mig snýst þetta bara um að melta það, og tilfinningarnar í lok leiksins eru eitthvað sem ég hef í raun ekki upplifað áður,“ sagði Carrick.

„Ég hef svo sannarlega orkuna – þetta skiptir mig svo miklu máli. Maður hefur leiki til að einbeita sér að og að safna leikmönnunum saman. Ég nýt ábyrgðarinnar sem fylgir því – ég elska það, það er það sem ég er hér til að gera,“ sagði Carrick.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×