Messi skoraði og lagði upp tvö í sigri Barcelona Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. janúar 2013 13:45 Nordic Photos / Getty Images
Lionel Messi var í aðahlutverki hjá Barcelona þegar liðið lagði Malaga að velli 3-1 í Andalúsíu í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Leikur liðanna var afar fjörugur og var hart barist sérstaklega í fyrri hálfleik. Messi kom gestunum yfir um miðjan hálfleikinn þegar hann komst inn í sendingu Ignacio Camacho, miðjumanns Malaga. Messi lék á landa sinn Willy Caballero í marki heimamanna og renndi boltanum í opið markið. Börsungar réðu gangi mála frá fyrstu mínútu í síðari hálfleik og uppskáru fljótlega mark. Messi átti þá frábæra sendingu á Cesc Fabregas sem sendi boltann í stöng og inn. Snyrtilegt mark og forysta gestanna verðskulduð. Varamaðurinn Tiago Alcantare bætti þriðja marki Börsunga við með fínu skoti utan teigs eftir veggspil við Messi. Annar Argentínumaður, Diego Buonanotte, minnkaði muninn undir lok leiksins með fallegu skoti úr aukaspyrnu. Eftir sigurinn hefur Barcelona ellefu stiga forskot á Atletico Madrid á toppi deildarinnar. Real Madrid er í þriðja sæti heilum 18 stigum á eftir Börsungum. Malaga, sem situr í fimmta sæti, fær tækifæri til þess að hefna tapsins í kvöld strax á þriðjudaginn. Þá sækir liðið Börsunga heim á Nývang í Konungsbikarnum.
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Grindavík - Njarðvík | Stórslagur á Suðurnesjunum Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Leik lokið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira