Laporta vildi ekki fá Cristiano Ronaldo til Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2013 15:30 Cristiano Ronaldo fagnar marki með Manchester United. Mynd/Nordic Photos/Getty
Joan Laporta, fyrrum forseti FC Barcelona, segir að hann hafi á sínum tíma fengið tækifæri til að fá Cristiano Ronaldo til Barcelona. Ronaldo fór þess í stað til Manchester United og er nú leikmaður erkifjendanna í Real Madrid. Cristiano Ronaldo var þá aðeins 18 ára og leikmaður með portúgalska liðinu Sporting. Manchester United keypti hann á 15 milljónir evra í ágúst 2003 en aðeins eftir að Barcelona hafði sagt nei. „Mendes bauð okkur Cristiano Ronaldo og fyrir minni pening en United borgaði fyrir hann. Við áttum bara ekki pening fyrir honum á þeim tíma. Jorge Mendes er mjög klókur umboðsmaður og á sína velgengni skilið," sagði Joan Laporta í útvarpsviðtali við Radio Marca. Joan Laporta sagðist ennfremur hafa ákveðið að velja Pep Guardiola frekar en José Mourinho. „Mendes hringdi í mig og spurði hvort ég hefði áhuga á því að ráða Mourinho en ég sagði að ég væri búinn að ákveða að fá Pep Guardiola í starfið. Mourinho er mikill fagmaður en við vorum með Guardiola sem var tilbúinn að taka næsta skref upp í aðalliðið. Ég var alltaf viss um þá ákvörðun mína og þetta er ein besta fótboltaákvörðun sem ég hef tekið," sagði Joan Laporta. Barcelona vann fjórtán af nítján titlum í boði undir stjórn Pep Guardiola frá 2008 til 2012.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira