Snorri | Held áfram á meðan Aron hefur not fyrir mig Sigurður Elvar Þórólfsson í Barcelona skrifar 20. janúar 2013 22:20 Snorri Steinn Guðjónsson telur að framtíðin sé björt hjá íslenska landsliðinu þrátt fyrir vonbrigðin eftir tapið gegn Frökkum á HM í kvöld. Mynd / Vilhelm „
Þegar við náum upp góðum leik gegn liði eins og Frakklandi á stórmóti við þessar aðstæður þá eru það alltaf smáatriðin sem skilja á milli. Þeir refsuðu okkur fyrir öll mistök og það var munurinn á þessum liðum í dag," sagði Snorri Steinn Guðjónsson í leikslok en leikstjórnandinn skoraði 2 mörk úr alls 6 skotum sínum í leiknum. „Sóknarleikur „hikstaði" aðeins þegar Frakkar settu varnarmann á Aron (Pálmarsson) og „plúsuðu" hann. Við leystum það síðan vel að mínu mati og sérstaklega eftir að Ólafur Gústafsson kom sterkur inn og dúndraði á markið. Á endanum tókst okkur að leysa þetta en Thierry Omeyer reyndist sterkur í markinu undir lokin. Hann, Nikola Karabatic og Cedric Sorhaindoo sáu um að loka þessum leik á síðustu fimm mínútunum. Með smá heppni og ef ég hefði dottið aðeins betur í gang í skotunum þá hefðum við getað leyst þetta enn betur," sagði Snorri en hann telur margt jákvætt vera í gangi hjá íslenska landsliðinu og horfir bjartsýnn fram á veginn. „Þetta var gríðarlega gott mót fyrir ungu strákana og gott fyrir okkur að þeir öðlist reynslu. Rússaleikurinn eru mestu vonbrigðin – við klúðruðum því og settum sjálfa okkur í þessa stöðu." Snorri ætlar sér að halda áfram að leika með landsliðinu á meðan Aron Kristjánsson telur þörf fyrir hann í liðinu. „Það hefur ekki verið eins mikið álag á mér í vetur og á undanförnum tveimur árum. Ég er í góðu standi, laus við meiðsli, og ég er spenntur fyrir framhaldinu. Við getum klárað undankeppnina fyrir Evrópumeistaramótið í Danmörku með því að vinna Slóvena, og við fáum inn leikmenn sem voru meiddir á þessu móti. Það er því bara bjart framundan," sagði Snorri Steinn Guðjónsson.
Mest lesið Joshua í bílslysi þar sem tveir létust Sport Þetta er vitað um banaslysið sem Anthony Joshua slapp lifandi úr Sport Þreytt á umræðu um líkamann sinn: „Á ekki að tjá sig um það“ Sport Hneysklaður á ósönnum orðrómum Fótbolti Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Enski boltinn Hættir ekki fyrr en hann skorar þúsund mörk Fótbolti „Þegar þú spilar við Gary Anderson er alltaf pláss fyrir flugeldasýningu“ Sport Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Enski boltinn Strákarnir komnir í úrslit á Sparkassen Handbolti Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Fleiri fréttir Strákarnir komnir í úrslit á Sparkassen Óðinn bikarmeistari fjórða árið í röð Kolstad tapaði bikarúrslitaleiknum í vítakeppni Segir starfið í húfi hjá Alfreð Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Íslendingarnir í miklum ham fyrir EM Handarbrotinn og missir af úrslitaleiknum Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Elín Klara atkvæðamikil og sigursæl í jólaleiknum Birgir byrjaði rólega eftir jólafrí en fagnaði sigri Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Sjá meira