NBA í nótt: San Antonio og Miami í banastuði | James náði ekki 30 stigum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. febrúar 2013 09:03
San Antonio Spurs styrkti í nótt stöðu sína á toppi Vesturdeildarinnar í NBA-deildinni í körfubolta með góðum sigri á LA Clipper á útivelli, 116-90. San Antonio hefur nú unnið fimm leiki í röð og er með langbesta árangur allra liða í deildinni, hvort sem er í austrinu eða vestrinu. Tony Parker skoraði 31 stig fyrir San Antonio, auk þess að gefa sjö stoðsendingar. Hann tapaði boltanum aldrei í leiknum. Lið San Antonio var eð 59 prósenta skotnýtingu í leiknum sem er félagsmet á þessu tímabili. Leikmenn þess settu niður átta þriggja stiga skot í leiknum. Matt Barnes skoraði átján stig fyrir Clippers og Blake Griffin sautján. Liðið hafði unnið fjóra leiki í röð fyrir leik næturinnar. Einn annar leikur fór fram í deildinni í nótt. Efsta lið Austurdeildarinnar, meistararnir í Miami Heat, hafði betur gegn Chicago á útivelli, 86-67. LeBron var með 26 stig og tók þar að auki tólf fráköst en þetta var níundi sigur Miami í röð. James var einnig með sjö stoðendingar. Fyrir leikinn í nótt hafði James skoraði minnst 30 stig í sjö leikjum í röð og þeirri ótrúlegu hrinu því lokið. Dwyane Wade skoraði sautján stig en sigur Miami-liðsins var öruggur. Þetta var fimmta tap Chicago í síðustu sjö leikjum en stigahæstur í liðinu var Nate Robinson með fjórtán stig.Úrslit næturinnar: Chicago - Miami 67-86 LA Clippers - San Antonio 90-116
NBA Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Íslenski boltinn Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Enski boltinn Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum Íslenski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira