Neyðarfundur á þingi Kýpur í dag 18. mars 2013 06:29
Neyðarfundur verður haldinn á þingi Kýpur í dag þar sem ræða á samkomulagið um neyðarlánið sem Kýpur hefur gert við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Evrópubandalagið. Mikil reiði ríkir meðal Kýpurbúa vegna þess að eitt af skilyrðum fyrir láninu er skattur á allar bankainnistæður á eyjunni, mismunandi eftir upphæðum eða frá 6,75% og í tæp 10%. Sökum þessa hafa allir hraðbankar á Kýpur tæmst yfir helgina. Á móti skattinum fá innistæðueigendur verðlaus hlutabréf í viðkomandi banka upp á sömu upphæð og skatturinn. Ekki er búist við að þingið samþykki neyðarlánið í dag. Almennt er talið að fyrrgreindur skattur sé tilkominn til að neyða rússneska auðmenn til að taka þátt í að bjarga Kýpur frá þjóðargjaldþroti. Vitað er að gífurlegar upphæðir, bæði löglegar og ólöglegar, hafa verið fluttar frá Rússlandi og í geymslu í bönkum á Kýpur.
Mest lesið Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Hafði betur eftir að hafa fengið of stór gleraugu í hendurnar Neytendur Ófremdarástand í bílastæðamálum aðhlátursefni Neytendur Fleiri fréttir Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira