Segir af sér eftir að hafa hvatt Bjarna til þess að láta af formennsku 13. apríl 2013 15:05 Friðrik Friðriksson.
Friðrik Friðriksson hefur sagt af sér sem formaður kosningastjórnar Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. „Ég get staðfest það að ég fór úr kosningastjórninni,“ segir Friðrik í samtali við Vísi en bætir við að engin röskun verði á baráttunni í kjördæminu þar sem stjórnin sé í raun hópur sem hittist vikulega, leggi línur og ráði meðal annars kosningastjóra. Sá kosningastjóri heldur áfram að vinna með frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins og því breytist í raun sáralítið við brotthvarf hans. Friðrik, sem er eiginmaður Elínar Hirst, frambjóðanda flokksins í Suðvesturkjördæmi, segir þetta skref eðlilegt, þá sérstaklega í ljósi þess að hann hafi hvatt Bjarna til þess að segja af sér sem formaður í ljósi bágrar stöðu flokksins í skoðanakönnunum undanfarnar vikur. Og það tvívegis. „Ég hafði áhyggjur af stöðu flokksins,“ útskýrir Friðrik og bætir við: „Þannig það var ekki rökrétt fyrir mig að halda áfram.“ Friðrik ákvað semsagt að segja sig úr kosningastjórninni eftir að Bjarni ákvað að halda áfram sem formaður flokksins eins og hann tilkynnti á fjölmennum fundi í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ í dag. Friðrik tekur sérstaklega fram að það sé enginn sérstakur ágreiningur á milli hans og Bjarna, „Og mér finnst það ánægjulegt að Bjarna hafi tekist að ná smá augnabliki í kringum flokkinn,“ segir hann og vonar að það muni draga upp fylgið.
Kosningar 2013 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira