Óskar Bjarni rekinn frá Viborg | Ég er drullufúll Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. apríl 2013 11:01
Danska úrvalsdeildarfélagið Viborg tilkynnti í dag að kvennalið félagsins hefði fengið nýjan þjálfara. Óskar Bjarni Óskarsson tók við liðinu á miðju tímabili eftir að hafa hafið tímabilið sem þjálfari karlaliðsins. Viborg er í miðri úrslitakeppni í Danmörku og í öðru sæti síns riðils eftir fjóra leiki. Liðið hefur unnið tvo leiki en tapað tveimur. „Þetta er nokkuð sérstakt,“ sagði Óskar Bjarni í viðtali við Vísi. „Ég var á leið með liðið í undanúrslit um helgina þegar ég var kallaður á fund og tilkynnt þetta. Ég vissi svo sem þegar ég tók við kvennaliðinu að þetta yrði erfitt starf en svona hefur þetta verið alla tíð.“ Óskar Bjarni segir að úrslitin hafi ekki verið góð að undanförnu og að tap liðsins gegn Team Tvis um helgina hafi gert útslagið. „Við höfum tapað of mörgum leikjum og alveg eðlilegt að kíkja á það. Ég var ekki ánægður og ekki þeir í stjórninni heldur.“ „En ég var einbeittur að því að fara í undanúrsltin, vinna þann leik, fara svo í úrslitin og vinna þar. Það var það sem ég ætlaði að gera og er ég drullufúll að fá ekki tækifæri til þess.“ Viborg er öruggt með sæti í undanúrslitum en stjórn félagsins hefur áhyggjur af því að liðið muni ekki komast í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. „Það skiptir félagið gríðarlegu máli, vegna kosturnarsamninga og annars slíks. Því var ákveðið eftir tapið gegn Tvis að koma með smá auka kraft inn í liðið og þetta er leiðin sem þeir vildu fara. Svona er bara boltinn.“ Christian Dalmose mun taka við Viborg og honum er ætlað það hlutverk að koma liðinu í gegnum undanúrslit úrslitakeppninnar og í Meistaradeild Evrópu fyrir næstu leiktíð. Viborg tapaði fyrir Team Tvis á laugardaginn og Óskar Bjarni skilur ekki af hverju hann var þá ekki rekinn í gær. „Eftir leikinn fór ég heim og hóf undirbúning fyrir næsta leik. Ég er búinn að eyða miklum tíma í að klippa myndbönd og annað slíkt. Þeir áttu bara að reka mig í gær. Þetta er nú meiri vitleysan,“ sagði Óskar Bjarni en hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.
Handbolti Mest lesið Farin frá Braga eftir aðeins hálft ár Fótbolti Réttlætti Zirkzee-skiptinguna: „Stundum sækirðu betur með færri framherja“ Enski boltinn Neyðarlegt jafntefli United gegn Úlfunum Enski boltinn Segir Ísland eiga tvo af tíu bestu í heimi Handbolti Fékk á sig víti í mögulegum kveðjuleik Enski boltinn Arsenal rústaði Villa og náði fimm stiga forskoti Enski boltinn Barnastjarna á Álftanesið Körfubolti Sjáðu Arsenal rúlla yfir Villa og Úlfana ná í stig á Old Trafford Enski boltinn Anderson henti Van Gerwen úr leik Sport Welbeck skoraði úr einu víti og brenndi af öðru Enski boltinn Fleiri fréttir Einar Bragi og félagar áfram á toppnum Fara inn í nýja árið á toppnum Segir Ísland eiga tvo af tíu bestu í heimi Hetjuleg barátta dugði ekki gegn heimsmeisturunum Arnór stoðsendingahæstur þegar Karlskrona hoppaði upp í áttunda Elín Klara endaði árið með hundrað prósent skotleik Strákarnir komnir í úrslit á Sparkassen Óðinn bikarmeistari fjórða árið í röð Kolstad tapaði bikarúrslitaleiknum í vítakeppni Segir starfið í húfi hjá Alfreð Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Íslendingarnir í miklum ham fyrir EM Handarbrotinn og missir af úrslitaleiknum Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Elín Klara atkvæðamikil og sigursæl í jólaleiknum Birgir byrjaði rólega eftir jólafrí en fagnaði sigri Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Sjá meira